Morgunn - 01.06.1987, Síða 27
SHAFICA KARAGULLA
ÆÐRI SKYNJUN
FYRR OG NÚ
Æðri skynjun er ekki uppgötvun nútímavísinda. Til eru æva-
fornar heimildir, sem skýra frá æðri skynfyrirbærum, en auk
þess hefur varðveist mikill fjöldi sannana frá síðastliðnum tvö
hundruð árum. Þetta sýnir að slík fyrirbæri hafa raunar alltaf
verið að gerast; við erum ef til vill aðeins farin að veita þeim
meiri athygli en áður. Af ýmsum ástæðum mætti einnig halda að
tiltölulega fleiri einstaklingar nú en áður séu gæddir hæfileikum
til æðri skynjunar, en of snennnt er þó að segja neitt ákveðið
um það enn.
Fróðlegt er að athuga sögulegar heimildir í þcssu efni eins og
eftirfarandi frásögn sýnir, en hún segir frá atburði, sem átti sér
stað fyrir tæplega tvöhundruð árum. í þessu sambandi verður
okkur ósjálfrátt hugsað til hinnar frægu Jeane Dixon, og er
spádómsgáfa hennar gott hliðstætt dæmi.
Georg Washington sá eitt sinn merkilega „sýn“ þar sem hon-
um birtist framtíð mikillar þjóðar á meginlandi Ameríku. Þetta
gerðist á þrengingartímum bandarísku byltingarinnar, en sýnin
varð til þess að endurnýja hugrekki hans og þrek í hinni erfiðu
baráttu. Söguna skráði Anthony Sherman eftir frásögn
Washinton sjálfs, en hún var fyrst birt opinberlega mörgum
árum síðar. Síðan hefur hún verið endurprentuð mörgum
sinnum.
Sherman lýsir köldum sólbjörtum vetrardegi árið 1777.
Washington hafði dvalið einsamall á skrifstofu sinni allan síðari
hluta dags, en þegar hann kom þaðan út, var auðséð að honum
var brugðið og hann virtist bæði fölur og óstyrkur. Hann sagði
MORGUNN
25