Morgunn - 01.06.1987, Síða 48
HSP-Liírófið
Það kemur æ betur í ljós að HSP-hæfileikum má skipta í
marga og mismundandi þætti. Ég ætla að greina nokkuð frá
þessum þáttum í aðalatriðum. Fram að þessu hefur vísinda-
mönnum ekki tekist að gera neinn glöggan greinarmun á HSP-
hæfileikanum og á sálrænum fyrirbærum, en ég tel að aðalmun-
urinn á þessu tvennu sé fólginn í því að HSP-hæfileika noti
maðurinn við fulla meðvitund og af frjálsum vilja án neinn
utanaðkomandi áhrifa; sálræn fyrirbæri gerast hins vegar í ó-
meðvituðu ástandi og óháð vilja mannsins sjálfs. Dáleiðsla er
gott dæmi um fyrirbæri af þessu tagi, einnig ýmis konar miðils-
ástand þar sem miðillinn man ekkert af því, sem gerst hefur,
þegar hann vaknar. Þar sem mér hefur alltaf þótt erfitt að
skilgreina nákvæmlega hvað orðið „sálrænn" merkir í þessu
sambandi, vil ég láta það eftir þeim vísindamönnum að skýra
það, sem hafa fengist við rannsóknir á þessu sviði.
Við þekkjum öll orðin „dulvitund", „undirvitund“ og „dag-
vitund“ úr nútímasálarfræði og við höfum haft tilhneigingu til
að álíta að margt af því, sem okkur finnst torskilið, stafi ýmist
frá undirvitundinni eða dulvitundinni.
Mér hefur oft dottið í hug í þessu sambandi hvort ekki væri
eins hægt að hugsa sér að til væri eitthvað, sem kalla mætti
„yfirvitund"? Ef svo væri, gæti þá hugsast að fólk eins og t. d.
prófessor Aitken við Edinborgarhóskóla hefði náð sambandi
við slíka vitund? Eða hvaðan kemur honum sú geysimikla
þekking, sem birtist honum á einu andartaki? Þetta er ein af
þeim ráðgátum, sem sálvísindunum hefur enn ekki tekist að
leysa.
Oft koma sálrænir hæfileikar fram hjá fólki ásamt HSP-hæfi-
leikum og á það oft erfitt með að greina þetta tvennt í sundur.
Það er athyglisvert að rannsaka þetta og kemur margt merkilegt
fram í þessu sambandi. í þessari bók er þó aðeins skýrt frá þeim
einstaklingum, sem eingöngu eru gæddir HSP-hæfileikum.
Hæfileikar Edgars Cayce voru svo einstakir í sinni röð að eft-
ir því sem vitað er eiga þeir sér enga hliðstæðu. Hann hafði
mikla hæfileika til fjarhrifa, sá atburði gerast í fjarlægð; hann
46
MORGUNN