Morgunn - 01.06.1987, Qupperneq 49
skynjaði einnig orkusvið fólks og gerði sér grein fyrir tilfinning-
um þess og hugsunum. Þegar hann vildi, gat hann látið sig falla
í djúpan svefn og í því ástandi lýsti hann fólki í órafjarlægð
jafnframt því sem hann skýrði af ótrúlegri nákvæmni frá ástandi
þess og heilsufari. Hér var ekki um venjulegan miðilssvefn að
ræða og enn hefur ekki tekist að skilgreina hæfileik hans sem
neina tegund þeirra hæfileika, sem menn þekkja. Þessi huglægu
fyrirbæri eiga þó vafalaust eftir að skýrast. Stöðugt er unnið að
því að skilgreina og flokka niður hinar mismunandi tegundir
HSP-hæfileika, sumt hefur tekist að greina í aðalatriðum, en
um ákveðnar niðurstöður er enn ekki að ræða. Eitt af því, sem
er afar óljóst er það hvaða samband er á milli hinna ýmsu þátta
þessara hæfileika.
Sá HSP-hæfileiki, sem virðist einna algengastur, er skyggni-
gáfan. Vegna þess hve orðið sjálft hefur verið notað á margvís-
legan hátt, hefur talsverður ruglingur orðið á merkingu þess. í
bókstaflegri merkingu þýðir það „að sjá greinilega". Ef til vill er
best að skýra það sem hæfileika til þess að sjá út fyrir venjulegt
sjónsvið. Annars eðlis eru ofsjónir, sem aðeins eru persónu-
bundnar og innihald þeirra oft ruglingslegt og í þeim lítið sam-
hengi. Hins vegar skynjar sumt skyggnt fólk fyrirbæri, sem bera
vott um rökrétt og skynsamlegt innihald auk þess sem margt af
því skynjar það sama. Skyggnigáfan skiptist í marga mismun-
andi þætti. Fólk býr einnig yfir misjafnlega mikilli skyggni.
Sumir skynja orkusvið umhverfis persónur og hluti og geta með
tefingu lært að tengja það orsakasambandi við sýnilega hluti eða
fyrirbæri. Aðrir skynja í gegnum þétt efni, t. d. mannslíkamann
og geta þá lýst innri líffærum. Sumir sjá fyrir séu liðna atburði,
ef til vill sögufræga viðburði eða atriði úr ævi annars fólks.
Einnig eru svo þeir, sem geta séð fram í tímann og er þá talað
um forskyggni, sem er ein tegund spádómsgáfunnar. Sú gáfa er
einnig oft fólgin í því að einstaklingurinn sér ekki beinlínis,
heldur fær vitneskju utn að eitthvað muni eiga sér stað. Spákon-
sn, sem segir okkur frá liðnum atburðum og ókomnum í ævi
okkar, er þá annaðhvort konar hugsambandi, sem gerir henni
fært að „lesa“ úr fortíð og framtíð.
Fólk getur ýmist haft skyggnihæfileika á einu eða fleiri
morgunn
47