Morgunn - 01.06.1987, Blaðsíða 50
sviðum. Þeir sem þátt tóku í tilraunum Reichenbachs, sáu ýmist
segulsvið umhverfis segul, orkusvið kristall eða skynjuðu
geislaútstreymi frá fingurgómum. Reynslan hefur sýnt að marg-
ir þeirra, sem eru skyggnir, skynja í raun og veru á fleiri vegu
en þeir gera sér sjálfir grein fyrir. Einnig held ég að yfirleitt
megi færa skyggnihæfileika yfir á fleira en eitt svið. Stundum
kemur fyrir að skyggnigáfa birtist á síðari hluta ævinnar eins og
kom í ljós hjá Babbitt, en hvort sú skyggni hefur beinlínis þró-
ast vegna áhuga hans eða verið meðfæddur hæfileiki, er erfitt að
gera sér ljóst.
Meðal þeirra skyggnu manna, sem ég rannsakaði, voru
ýmsir, sem bæði sáu orkusviði líkamans og innri líffæri; aðrir
sáu orkusvið umhverfis, en ekki innan líkamans og virðist sem
þau orkusvið hafi hærri orkutíðni. Þeir fáu, sem skynja orku-
sviðin innan líkamans sjá undantekningarlaust einnig orkusvið-
ið umhverfis. Til er sú furðulega tegund skyggnigáfu að geta
stækkað mynd þess, sem skynjað er. Getur sá skyggni þá stækk-
að það sem hann skynjar allt að 10-20 sinnum. Vilji hann til
dæmis athuga nánar eitthvert líffæri, getur hann þannig stækk-
að það að vild og lýst því síðan mjög nákvæmlega í smáatriðum.
Ég hef unnið með konu, sem gat gert þetta. Hún gat farið eins
að við hluti, sem látnir voru í nokkurri fjarlægð frá henni og lýst
smáatriðum í honum, sem ekki voru sýnileg með berum augum.
Þeir sem gæddir eru mestum skyggnigáfum hafa stjórn á þess-
um hæfileika og geta beitt honum hvenær sem þeir vilja. Þetta
fólk forðast nánast undantekningarlaust að minnast á þessa
hæfileika sína. Það beitir þeim yfirleitt ekki nema til að hjálpa
öðrum. Það bendir á að oftast sé auðveldara að nota hin venju-
legu skilningavit og heilbrigða skynsemi. í þessu sambandi
minnist ég þess að eitt sinn þegar við Diane vorum á gangi á
götu, benti ég á konu, sem stóð á biðstöð strætisvagns og spurði
hana hvort hún sæi orkusvið í kringum þessa konu. Diane svar-
aði og sagði: „Sjálfsagt gæti ég það, ef ég reyndi, en hvers vegna
skyldi ég vera að því? Það væri ákaflega þreytandi að vera sí-
fellt að skoða fólk á þennan hátt. Varla mundi heldur nokkrum
lækni detta í huga að athuga heilsufar hjá hverjum manni, sem
48
MORGUNN