Morgunn - 01.06.1987, Page 51
hann mætir? Hjá mér er þessu eins farið; ég athuga aðeins fólk,
þegar mér finnst þörf á.“
Um þetta vorum við sammála og þótt fyrir kæmi að athyglin
beindist, einhverra hluta vegna, að einstakri persónu á þennan
hátt, var reglan yfirleitt sú, að við skoðuðum fólk aðeins í
ákveðnum tilgagni.
Oftast er skyggnigáfan ósjálfráður hæfileiki, sem aðeins gerir
vart við sig endrum og eins og hjá flestum aðeins örfáum sinn-
um á ævinni. Skynjunin sjálf er einnig mjög misjafnlega skýr og
nákvæm, en kemur oft sem áhrifamikil og óvænt reynsla í lífi
einstaklingsins.
Spurningin, sem hlýtur að vakna í þessu sambandi er sú,
hvort ekki væri hægt að þjálfa skyggnihæfileika hjá miklu fleira
fólki en nú er. En á meðan almennt viðhorf gagnvart slíkum
hæfileikum er neikvætt, er hinsvegar eðlilegt að fólk reyni frem-
ur að bæla þá niður en hitt.
Mikið hefur verið rætt um fjarhrif eða „telepathy“. Orðið
sjálft merkir bókstaflega að „skynja handan yfir“ eða að skynja
það sama og einhver annar. í venjulegri merkingu táknar það
hugsanasamband milli einstaklinga, sem á sér stað án ytri áhrifa
eða annarra skilningavita. í Rússlandi hafa vísindamenn komið
auga á þann möguleika að nota fjarhrif sent leið til þess að hafa
sambandi við geimfara á tunglinu eða úti í geimnum og hafa
talsvert rannsakað þetta í sambandi við geimferðaáætlanir
sínar. Þessar rannsóknir hafa þó enn ekki borið fullnægjandi
árangur, en tilraunirnar eru þó fyrst og fremst merkilegar vegna
þess að þarna kemur í fyrsta sinn fram raunverulega viðleitni
stjórnvalda til að nota hæfileika sem fjarhrif til gangs í nútíma
þjóðfélagi.
Algengt er að heyra fólk segja frá reynslu sinni af fjarhrifum
í samkvæmum eða annars staðar þar sem talið berst að þessum
efnum. Mjög margir verða fyrir reynslu af þessu tagi. Við höf-
um oft heyrt frásagnir af móður, sem fær hugboð um að barn
hennar sé í hættu eða um ættingja, sem vita að eitthvað alvar-
legt hefur átt sér stað innan fjölskyldunnar. Margir kannast líka
við það að fá skyndilega bréf frá gömlum vini, sem þeir hafa
morgunn
49