Morgunn


Morgunn - 01.06.1987, Side 52

Morgunn - 01.06.1987, Side 52
ekkert heyrt frá árum saman, en hafa svo nýlokið við að senda bréf þann sama dag. Allir þekkja dæmi um það úr daglegu lífi, þegar síminn hringir og maður veit hver er í símanum áður en hann lyftir símtólinu. Ef tilraunirnar eru ekki gerðar undir ströngu eftirliti, er erfitt að sannreyna, hvort um hugsanaflutn- ing hafi verið að ræða. Oft má heyra fólk, sem neitar því að til séu hæfileikar til æðri skynjunar, segja frá reynslu sinni af fjarhrifum og til eru jafnvel þeir, sem líta á fjarhrif sem sjálfsagðan hlut daglegrar tilveru. Verkfræðingur nokkur sagði frá því hvernig móðir hans hafði treyst á þennan eiginleika þegar hún sendi börnin út í búð til að versla og höfðu þau vanist því að taka við hugboðum hennar á þennan hátt. Ef hana vantaði eitthvað í viðbót við það sem þau áttu að kaupa sendi hún þeim hugboð um hvað hún vildi að þau kæmu með tilbótar og aldrei hafði brugðist að þau komu heim einmitt með það sem vantaði. Seinna varð þessi maður eigandi og framkvæmdastjóri að stóru verktakafyrirtæki, sem sá um margs konar framkvæmdir á vesturströnd Bandaríkjanna og hann þurfti þá oft að koma áríðandi skilaboðum til undirmanna sinna, sem oft gat reynst erfitt. Hann skýrði þá fyrir mönnum sínum, að ef nauðsyn krefði gæti hann sent þeim hugskeyti um að fara í síma og hringja til sín. Hann brýndi fyrir þeim, að ef þeim fyndist þeir þurfa að hringja í hann, þá skyldu þeir hringja, og þótt hugboð þeirra reynsust stundum ekki rétt, myndi hann fúslega borga kostnaðinn af þeim símtölum fremur en að eiga á hættu að nauðsynleg skilaboð kæmust ekki áleiðis. Petta tókst mjög vcl og höfðu margir mannanna fjótt komist upp á lag með að taka við skilaboðum á þennan hátt. Með þessu móti kvaðst eigandi verksmiðjunnar hafa sparað þúsundir dollara og komist hjá óþarfa tímasóun og erfiði. Að skynja tilfinningalegt ástand annarra er ein tegund HSP- hæfileika, sem er mjög algeng. Þeir, sem hafa þennan eiginleika eru mjög næmir fyrir tilfinningum annarra og hugarástandi og hefur því alls konar hugarangri, svo sem sorg, kvíði, ótti eða reiði oft mjög slæm áhrif á þá og veldur þeim óþarfa þjáningu. Þetta er því eins konar yfirfærsla tilfinninga eða kannski mætti 50 MORGUNN

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.