Morgunn


Morgunn - 01.06.1987, Page 54

Morgunn - 01.06.1987, Page 54
hann fylgjast með svona fólki. í þessu tilviki sér hinn skyggni ekki að þetta fólk dragi lífsorku hvort frá öðru. Fyrirbrigðinu er lýst þannig, að það líkist einna helst afhleðslu rafhlöðu. Annar aðilinn virðist framkall neista og afhleðslu lífsorku hins aðilans og öfugt, þannig að orkusvið beggja dofna og aflagast. Þegar þetta samband á sér stað milli hjóna, skapast hjá báð- um þreyta og eirðaleysi, sem þau reyna oft að ráða bót á með því að sækja leikhús, tónleika eða aðra staði þar sem fleira fólk er saman komið. Á þennan hátt virðast þau aftur geta endur- nýjað orku sína. Hugsast getur líka að návist fólksins myndi eins konar vörn gegn þessum gagnkvæmu áhrifunt þeirra og komi þannig í veg fyrir orkutap. Mörgum finnst hlutskyggni afar heillandi hæfileiki. Ekki er ótrúlegt að þessi HSP-hæfileika kunni að vera eins komar sam- nefnari allra hinna. Þegar tilraun með hlutskyggni fer fram, fær hinn skyggni í hendur hlut, mynd eða bréf, sem oft er innsiglað og veit hann því ekki á hverju hann heldur. Hann má síðan handleika hlutinn að vild. Hann skynjar þá myndir, atburði en einnig tilfinningar og ýmis geðhrif, sem við hann eru tengd. Hlutskyggnt fólk hefur þennan hæfileika á mjög mismunandi háu stigi. Hlutskyggn maður, sem t.d. heldur á skartgrip í hendinni, skynjar mynd eigaanda hans eða eigenda, ef þeir hafa verið fleiri og lýsir hann þeim og getur sagt frá ýmsurn helstu atburð- um í ævi þeirra. Sumir sjá einstök atriði, en aðrir geta séð at- burðarás svipað því og verið væri að horfa á atriði eða hluta úr kvikmynd. í þessu sambandi er athyglisvert að sé hlutskyggn maður látin lýsa sama hlutnum oftar en einu sinni, skyjar hann aðalatriðin eins í öllu skipti en auk þess bætast oft við ýmis fleiri smáatriði, sem ekki hafa komið í ljós áður. Auk þess að sjá myndir, skynj- ar sá hlutskyggni venjulega líka ýmis hugræn og tilfinningaleg áhrif. Stundum virðist eins og hann geti sjálfur liorfið inn í myndinar, tekið þátt í atburðarásinni og heyrt og skilið samtal fólksins. Hlutskyggnt fólk hefur verið notað til að finna týnda menn eða leita uppi glæpamenn eða lýsa því sem gerðist þegar glæp- 52 MORGUNN

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.