Morgunn


Morgunn - 01.06.1987, Page 57

Morgunn - 01.06.1987, Page 57
um hlutinn. Ekki er ósennilegt að í framtíðinni verði hægt að þjálfa þessa hæfileika betur og að þeir geti þá komið að gagni á ýmsan hátt ólíkt því, sem nú þekkist. Líklega er að hlutskyggni sé sá HSP-hæfileiki, sem býr yfir mestri fjölbreytni. Þar kernur fram bæði sjón- og tilfinninga- skyggni og í mörgum tilvikum einnig heyrnarskyggni. Hinn hlutskyggni skynjar sjávarnið og gnauð vindsins, hann heyrir öskur villidýranna og hljóm mannsraddarinnar. Einnig getur verið um að ræða einskonar hugsanaflutning, því að hinn hlut- skyggni skynjar oft það sem aðrir hugsa og hvað þeir hyggjast fyrir, þegar hann virðir fyrir sér atburði, sem tengdir eru hlutnum. Einn vísindamanna 20. aldar setti eitt sinn fram þá tilgátu, að til sé einhvers staðar í geimnum einskonar myndsegulband af öllu því sem gerst hefur á jörðinni. Hann bætti því við að ef til vill mundi okkur einhvertíma takast að ná upp röddum meistar- anna fornu, Sókratesar eða Cesars, Buddha og Krists. Ekki er ótrúlegt að náttúran kunni að geyma slíka atburðaskrá og það sé einmitt þetta, sem hinn hlutskyggni komsti í samband við, þegar hann er að virða fyrir sér liðna atburði. Hluturinn, sem hann heldur á verður sá tengiliður, sem kemur honum í snert- ingu við þetta hulda atburðasvið. Þegar öll kurl koma til grafar, hvað vitum við þá raunverulega mikið um þetta næmasta og margbrotnasta tæki sem köllum mannlega veru? Hughreyfiorka, eða sá hæfileiki að geta hreyft hluti með hugarafli, hefur lítið verið rannsökuð, og hefur raunar minni at- hygli vakið en ýmsir aðrir HSP-hæfileikar. Tilraunir mínar ná enn of skammt til þess að ég hafi getað myndað mér neina ákveðna skoðun í þessum efnum og sjálf hef ég aðeins þekkt tvo einstaklinga, sem að verulegu leyti hafa sýnt hæfni á þessu sviði. Þessi hæfileiki er auðsjáanlega til, og ég held að þegar betri aðstæður hafa skapast til rannsókna, hljóti þessi hæfileiki að finnast hjá fleiri mönnum. Ég held að í þessu felist margs konar möguleikar. morgunn 55

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.