Morgunn


Morgunn - 01.06.1987, Blaðsíða 58

Morgunn - 01.06.1987, Blaðsíða 58
Maður framtíðar Maðurinn á í dag um tvennt að velja: Annaðhvort að gefa sig á vald þeim eyðingaröflum, sem hann býr yfir eða nota þekk- ingu sína til þess að hefja sig upp á nýtt stig til skilnings á sjálf- um sér og umhverfi sínu. Hinar ótrúlega öru framfarir á sviðum vísinda og tækni hafa á ýmsan hátt orðið mönnum ofviða. Þeim hefur ekki tekist að aðlaga sig þeim breyttu aðstæðum, sem hafa skapast og afleiðingar þess komið fram í andlegu ójafnvægi og alls kyns upplausn innan þjóðfélagsins. Margir hafa gefist upp í hinni síauknu samkeppni við umhverfi sitt og tekið þann kost að lifa aðeins fyrir líðandi stund. Hjá fjölda manns kemur slík uppgjöf fram í alls kyns eyðileggingarstarfsemi og skemmdarfýsn, sem víða má sjá. Það er óhjákvæmilegt að samhliða tækniþróuninni hlýtur maðurinn jafnframt sjálfur að taka einhverjum breytingum. Sú breyting eða þróun hlýtur einnig fyrst að koma í ljós á meðal hinna fáu, sem síðan mun breiðast út smátt og smátt meðal fleiri manna. Með þeim hætti hefur framþróun alltaf átt sér stað. Það er ekki ósennilegt að þeir skynnæmu einstaklingar, sem finna má á meðal okkar í dag, séu einmitt vísir að slíkri þróun, sem eigi eftir að verða öllum sameiginleg. Hæfileikar mannsins til að skynja, meta og aðlaga sig umhverfi sínu verða að aukast, annars hlýtur hann að bíða lægri hlut gagnvart þeim aðstæðum, sem hann sjálfur hefur skapað. Það er ekki óhugsandi að skynj- un á fleiri sviðum tilverunnar gæti orðið til þess að færa mönn- um nýjan skilning og viðhorf, sem leitt geti mannkynið út úr þeim ógöngum, sem það nú virðist vera komið í. Slíkur skiln- ingur gæti orðið til þess að veita lífinu aukinn tilgang og gildi. Því fer fjarri að skynnæmir einstaklingar séu einhver ofur- menni; þeir eru aðeins venjulegt fólk, sem er á leiðinni út fyrir þröng takmörk skilningarvitanna og inn á víðara skynsvið. Hingað til hefur það verið venja að álíta að skilningarvitin fimm væru þau takmörk, sem mannverunni væru sett, svipað og hljóðmúrinn, sem við héldum að aldrei yrði rofinn. Við verðum að viðurkenna að hæfileikar til æðri skynjunar eru staðreynd, 56 MORGUNN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.