Morgunn - 01.06.1987, Blaðsíða 71
um vísindalegrar þekkingar. Hvar eru takmörkin milli eðlilegr-
ar og þrjóskubundinnar gagnrýni?
Psi - tákn fyrir hið óskýranlega
ALLT bendir til þess, að hugsanaflutningur leggi leið sína frá
undirvitund einnar manneskju til undirvitundar annarar mann-
eskju. Þetta á jafnt við um ómeðvitaðar sem vitaðar minningar
manna, sem hver og einn kann að rumska við gagnkvæmum
tengslum manna á milli. Þetta mun einkum eiga við, er viðtak-
andi sefur og nýtur drauma: Menn hafa séð þess mörg dæmi, að
„hugsanaskipti í draumi“ hafa átt sér stað í gervi minninga-
tengsla. Á hinn bóginn verður ekki betur séð en að „beinar“
táknmyndir eins og þær, sem beitt er á rannsóknarstöðum á
þessum sviðum, megi senda til hreyfitauga líkamans líkt og
hverjar aðrar raktar fyrirskipanir.
Þannig fékk hópur hollenskra sálfræðinga, sem fékkst við til-
raunir við háskólann í Groningen, undir leiðsögn Brugmans
prófessors, ekki betur séð, en að við augum hans blasti greini-
legur dulflutingur hugsana til viðtakanda. í loftinu á tilraunasal
þeirra hafði verið komið fyrir rúðu, sem ekki flutti hljóð á milli.
Úr herbergi, sem var fyrir ofan tilraunasalinn, gátu rannsóknar-
menn því fylgst með öllum viðbrögðum tilraunaþolans, sem var
ungur námsmaður. Hann var í tilraunasalnum fyrir neðan og
stóð þar fyrir framan töflu, sem á voru markaðir 48 ferhyrnings-
reitir, og var vandlaga bundið fyrir augu hans. Tilraunin stefndi
að því að reyna að senda tilraunaþola, með hugsanaflutningi,
boð um röð af reitanúmerum, sem hverju sinni voru valin með
útdrætti. Tilraunamennirnir sáu nú, að þeir „beittu“ hönd við-
takanda í áttina að ákveðnum reit, í hvert sinn sem þeir tóku að
hugsa um þann reit. Ef hrein tilviljun hefði hér ráðið niðurstöð-
um, má ætla að svaranir hefður orðið réttar að 2 hundraðshlut-
um. Námsmaðurinn gaf hins vegar réttar svaranir er námu 21 af
hundraði og, er hann hafði neytt nokkurs áfengis, komst hann
upp í 75 réttar svaranir af hundrað mögulegum.
Það mun mörgum koma á óvart, að ekki skuli reynast unnt að
festa hendur á þeim áhrifum, sem þannig er hægt að staðreyna,
morgunn
69