Morgunblaðið - 22.02.2009, Blaðsíða 53
Minningar 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2009
Jórunn Ragna
Blandon
✝ Jórunn RagnaBlandon fæddist
í Reykjavík 1. janúar
1924. Hún lést á
Landspítalanum 15.
janúar sl.
Foreldrar hennar
voru Ragnheiður Þor-
steinsdóttir Blandon, f. 18.8. 1890, d.
29.10. 1973, og Þorkell Erlendsson
Blandon lögfræðingur, f. 23.8. 1890, d.
29.11. 1977. Bróðir Rögnu var Þorsteinn
Blandon, f. 27.4. 1920, d. 29.11. 1997.
Hinn 11.1. 1944 giftist Ragna Sigurði
Hauki Lúðvigssyni listmálara, f. 12.2.
1921, d. 6.6. 2006. Dætur þeirra: 1)
Ingigerður, f. 15.5. 1944, maki Jóhannes
Jónsson, sonur þeirra er Guðmundur
Ingi. 2)Ragnheiður, f. 26.3. 1948, maki
Helgi Á. Gunnlaugsson, synir hennar og
Gísla Baldvinssonar eru Sigurður Hauk-
ur Gíslason, hans dóttir er Rakel Ósk,
og Baldvin Gíslason Bern. 3) Kristín f.
14.2. 1952, d. 25.12. 2005, maki Mo-
gens Kayser Gjöe, synir þeirra eru
Dennis Kayser Gjöe og Nikolaj Kayser
Gjöe. 4) Louisa Ragna f. 25.1. 1963.
Útför Rögnu fór fram í kyrrþey að
hennar ósk.
Meira: mbl.is/minningar
Lilja Brynjólfsdóttir
✝ Lilja Brynjólfs-dóttir fæddist í
Króki í Norðurárdal 2.
september 1917. Hún
andaðist á Hrafnistu í
Reykjavík þriðjudag-
inn 3. febrúar síðast-
liðinn, 91 árs að aldri.
Foreldar hennar voru Brynjólfur
Bjarnason bóndi, f. á Skarðshömrum í
Norðurárdal í Mýrasýslu 8.10. 1882, d.
18.11. 1962, og Arndís Ágústína Klem-
enzdóttir, f. í Fremri-Hundadal í Dala-
sýslu 22.4. 1888, d. 24.9. 1955.
Lilja átti fjögur alsystkini, sem öll
voru fædd í Króki, en þau voru: Gísli, f.
1918, d. 2005, Haraldur, f. 1921, Ragn-
heiður, f. 1923, d. 1969, og Hjörtur, f.
1924, d. 2004. Hálfsystir, sammæðra
var María Ólafsdóttir, f. 1905, d. 1979.
2. mars 1957 kvæntist Lilja Lárusi
Sigurgeirssyni, f. 1923, húsgagna-
smíðameistara úr Reykjavík. Foreldrar
hans voru Sigurgeir Finnur Magnússon,
f. í Búrfellskoti, Svínavatnshr., V-Hún
1896, d. 1987 og Línbjörg Árnadóttir, f.
á Mosfelli, Svínavatnshr., A-Hún 1896,
d. 1966.
Lilja og Lárus bjuggu lengst af í Álfta-
mýri 6 í Reykjavík, áður voru þau á
Fálkagötu 30 í Reykjavík, á Hrafnistu í
Reykjavík fluttu þau 2004. Barn þeirra
er Gunnar Lárusson, f. 23.9. 1963, var
kvæntur Arnheiði Bergsteinsdóttur, f.
29.1. 1966. Þau eiga tvö börn, a) Lilju
Hrönn, f. 24.5. 1989 og b) Bryndísi, f.
2.10. 1994. Lilja var á yngri árum lengst
af í foreldahúsum í Króki og sinnti þar
almennum bústörfum, einnig var hún
vinnukona á nokkrum heimilum í
Reykjavík. Hún var í Húsmæðraskól-
anum á Staðarfelli 1940 til 1941. Í
Fornahvammi starfaði hún sem mat-
ráðskona og svo síðar á Bifröst í Borg-
arfirði á byggingartíma stækkunar
hússins 1955. Þar kynnist hún Lárusi
eftirlifandi eiginmanni sínum sem vann
þar við smíðar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að
ósk hinnar látnu.
Meira: bl.is/minningar
Þórir Rafn Guðnason
✝ Þórir RafnGuðnason fædd-
ist í Reykjavík 23.
október 1928. Hann
lést á heimili sínu, 12.
febrúar síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Guðni Halldórsson frá
Hreiðri í Holtahreppi í Rangárvallasýslu,
f. 11.10. 1894, d. 21.12. 1979 og Jóhanna
Jóhannsdóttir frá Haga í Holtahreppi, f.
22.6. 1893, d. 28.9. 1981 Systkini Þóris
eru: Vilfríður, f. 11.6. 1920; Pálína Lilja, f.
6. 6. 1923, d. 1996. Hulda, f. 1.7. 1925.
Fósturbróðir og frændi Þóris var Gísli
Dagsson, f. 24.5. 1937, d. 2.5. 2004.
Þórir kvæntist 29. maí 1950 Jónu
Guðrúnu Bjarnadóttur frá Guðnabæ í
Selvogi, f. 14.9. 1929. Foreldrar hennar
voru Bjarni Jónsson frá Stíflisdal í Þing-
vallahreppi, f. 28.9. 1896, d. 12.2. 1964
og Halldóra Guðrún Halldórsdóttir frá
Bartakoti í Selvogi, f. 8.7. 1900, d. 9.7.
1986, þau voru bændur í Guðnabæ í
Selvogi. Fyrstu búskaparár Þóris og
Guðrúnar bjuggu þau hjá foreldrum
hans á Mímisveginum en fluttu svo árið
1955 að Hverfisgötu 114 og síðan að
Hraunbæ 190 árið 1967 þar sem þau
hafa búið síðan. Börn Þóris og Guð-
rúnar eru: 1) Jóhanna, f. 22.10. 1949,
gift Ingþóri Jónssyni, f. 13.1.1947. Synir
þeirra eru Jón, f. 5.7.1969, maki Felicia
Mariana, dóttir þeirra er Jóhanna
María; og Þórir, f. 4.4.1977, maki Jó-
hanna Kristín Björnsdóttir, dætur þeirra
eru Þórunn Jóhanna og Elísabet Hildur.
2) Guðni Rúnar, f. 1.6.1955, maki Guð-
björg Emma Ingólfsdóttir, f. 8. 4.1969.
Sonur Guðna og Svandísar Ríkharðs-
dóttur, f. 22.10. 1957 er Ríkharður Ósk-
ar Guðnason, f. 13.3. 1985, maki Valdís
Unnarsdóttir.
Þórir ólst upp í Reykjavík, að Mím-
isvegi, hjá foreldrum sínum og systk-
inum. Þórir stundaði nám við Iðnskól-
ann í Reykjavík og lauk þaðan
sveinsprófi í múrverki árið 1958. Í trún-
aðarráði 1960-1962 og 1963-1969.
Meistari Þóris var Jón Guðjónsson.
Lengst af vann hann hjá Þórði Þórð-
arsyni múrarameistara og síðan hjá
syni hans, Jóni múrarameistara. Frá
1990 til 1996 starfaði Þórir hjá Reykja-
víkurborg við viðhaldsstörf.
Útför Þóris fór fram í kyrrþey. Jarð-
sett var í Gufuneskirkjugarði.
Sigurður
Helgason
✝ Sigurður Helga-son fæddist í
Reykjavík 20. júlí
1921. Hann lést á
Mustique, St. Vincent
og Grenadine-eyjum í
Karíbahafi 8. febrúar
síðastliðinn.
Minningarathöfn um Sigurð var í
Dómkirkjunni 20. febrúar sl.
Meira: mbl.is/minningar
Helgi Ívarsson
✝ Helgi Ívarssonfæddist í Vestur-
Meðalholtum í Gaul-
verjabæjarhreppi 2.
júní 1929. Hann lést
13. febrúar síðastlið-
inn og var jarðsung-
inn frá Gaulverjabæj-
arkirkju 21. febrúar.
Meira: mbl.is/minningar
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð, vináttu og hlýhug vegna andláts og
útfarar
GUÐRÚNAR BJARKAR RÚNARSDÓTTUR
FREDERICK,
Hátúni 37,
Reykjanesbæ.
Kenneth W. Frederick,
Gunnar Már Vilbertsson,
Sara Margrét Frederick,
Viktoria Lynn Frederick,
Fríða Felixdóttir, Rúnar Lúðvíksson,
Lúðvík Rúnarsson, Iðunn Ingólfsdóttir,
Gunnar Felix Rúnarsson, Arna Hrönn Sigurðardóttir,
Særún Ása Rúnarsdóttir, Jónas Þór Jónasson
og aðrir aðstandendur.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
vináttu og hlýhug vegna andláts og útfarar eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og
bróður,
ÞORSTEINS BJÖRGVINS JÚLÍUSSONAR,
Lækjartúni 6,
Akureyri.
Sigríður Lára Árnadóttir,
Guðlaug Þorsteinsdóttir, Aðalsteinn Pétursson,
Árni Þorsteinsson, Violetta Heiðbrá Hauksdóttir,
barnabörn og systkini hins látna.
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð, vináttu, hlýhug og stuðning vegna
andláts og útfarar
GUÐJÓNS ÆGIS SIGURJÓNSSONAR
hæstaréttarlögmanns,
sem lést af slysförum mánudaginn 5. janúar.
Þórdís Erla Þórðardóttir,
Hjörtur Leó Guðjónsson,
Harpa Hlíf Guðjónsdóttir,
Pálína Tómasdóttir, Sigurjón Bergsson,
Bergur Tómas Sigurjónsson, Anna Björg Stefánsdóttir,
Gylfi Birgir Sigurjónsson, Linda Rós Jóhannesdóttir,
Vigdís Hjartardóttir, Þórður Grétar Árnason,
Árni Leó Þórðarson.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát móður okkar, tengda-
móður og ömmu,
ELÍSABETAR SKAFTADÓTTUR
frá Suður-Fossi í Mýrdal,
Birkihvammi 6,
Kópavogi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjúkrunarheimilinu
Sunnuhlíð fyrir góða umönnun.
Björgvin Skafti Vilhjálmsson, Margrét Jónsdóttir,
Valdís Þórunn Vilhjálmsdóttir, Sæmundur Ingvason,
Gunnar Baldvin Björgvinsson,
Björgvin Birkir Björgvinsson,
Ingvi Þór Sæmundsson.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengda-
móður, ömmu, langömmu og langalangömmu,
SÓLVEIGAR SIGRÚNAR ODDSDÓTTUR
frá Nýjalandi,
Garði.
Sérstakar þakkir til Kvenfélagsins Gefnar og Slysa-
varnardeildar kvenna í Garði fyrir framlag þeirra við útförina og
alúðarþakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins Garðvangs
fyrir einstaka umönnun og hlýhug.
Kristmann Hjálmarsson, Guðríður Hafsteinsdóttir,
Magnea Hjálmarsdóttir, Ólafur Ágústsson,
Ásgeir Magnús Hjálmarsson, Sigurjóna Guðnadóttir,
Guðrún Eyvindsdóttir,
Ragnheiður Hjálmarsdóttir, Rögnvaldur Einarsson,
Jón Hjálmarsson, Sigríður Björg Halldórsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð, hlýhug og vináttu vegna andláts og útfarar
eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
GUÐRÚNAR SUMARLIÐADÓTTUR,
Heiðarhorni 6,
Keflavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja
fyrir einstaka umönnun og hlýhug.
Guð blessi ykkur öll.
Leifur S. Einarsson,
Oddný Guðbjörg Leifsdóttir, Björn Ólafsson,
Leifur Gunnar Leifsson, Brynja Hjaltadóttir,
Bryndís María Leifsdóttir, Friðrik Friðriksson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til ykkar allra sem auðsýnduð
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegrar móður minnar og ömmu okkar,
ARNFRÍÐAR ARADÓTTUR,
Kveldúlfsgötu 3,
Borgarnesi.
Guð blessi ykkur öll.
Fyrir hönd aðstandenda,
Vigdís Guðrún Sigvaldadóttir,
Sigvaldi Arnar Hjaltason,
Jónný Hekla Hjaltadóttir.
✝
Okkar bestu þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
ÁSU TORFADÓTTUR,
dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund.
Alúðarþakkir færum við öllu starfsfólki Grundar en
þó sérstaklega þeim sem starfa á deild A-2, fyrir
frábæra umönnun og elskulegt viðmót.
Katrín Árnadóttir, Kjell Friberg,
Hermann Árnason, Guðríður Friðfinnsdóttir,
Torfi Árnason, Ingibjörg Pálsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.