Ný saga - 01.01.1995, Page 19
Sfldarævintýrið í Hvalfirði 1947^48
innar. Samkvæmt leigusanmingi, sem var
undirritaður í lok janúar, fékk Fram 25 aura
fyrir hvert mál sfldar sem var flutt á völlinn,
þó aldrei meira en 18.000 krónur, eða sem
jafngilti 72.000 rnálum."’5
Þegar fara átti að flytja síld á Framvöllinn
kom í ljós að útgerðarmenn tóku ekki í mál
að landa sfld til geymslu í Reykjavfk fyrir það
verð sem stjórn SR hafði ákveðið. Peim varð
ekki haggað svo verksmiðjustjórnin neyddist
til að hækka flutningsgjaldið um þrjár krónur,
enda lofaði ríkisstjórnin að bera helming þess
kostnaðar á móti verksmiðjunum.106
Þetta var tilkynnt 7. desenrber og næstu
nótt fór fyrsta síldin á völlinn. Losað var úr
10-12 bátum, að sögn Alþýðublaðsins, þó að-
eins af dekki hjá sumum, sem héldu sjálfir
norður með afganginn."17 Búið var að koma
fyrir plönkum á vellinum, vörubflar keyrðu
svo sfldina þangað, hún var söltuð um leið og
henni var hvolft fram af hamraveggnum og
látin renna í slyskjum niður á völlinn en hann
liallaði dálítið svo síldin dreifðist vel."’8 Innan
nokkurra daga voru 25.000 mál komin á
Framvöllinn og um miðjan desembermánuð
var líka búið að setja sfld í fiskgeymsluhús
SÍF við Elliðaárvog en þar rúmuðust 14.000
mál. Einnig var stórt flugskýli á Reykjavíkur-
flugvelli tekið undir sfldina."w
Áfram var landburður af síld úr Hvalfirði
og ekki nóg með það, heldur varð síldar einnig
vart á Sundunum við Reykjavfk. Urn miðjan
desember kom fyrir að skip fylltu sig þar á
nokkrum klukkustundum."" Þegar leið að jól-
um var búið að vinna úr um 270.000 málum á
Siglufirði, um 300.000 mál að auki voru kom-
in norður og um 80.000 mál biðu flutnings í
Reykjavík.1" Ekki var tekið á móti síld yfir
hátíðirnar og almenningur gat vel unnt sjó-
mönnum hvfldarinnar; á þessum skömmtun-
ar- og haftatímum fengu þeir átölulaust 30
gramma aukaskammt af kaffi og 200 grömm
af sykri - og meira ef þeir vildu. Þeir, sem
unnu við uppskipun á Siglufirði og í verk-
smiðjunum þar, fengu einnig aukaskammt, að
vísu eftir nokkurt þref.":
Milli jóla og nýárs var sætt lagi að flytja
sem mest af sfld af Framvellinum; True Knot,
Mynd 9. Síldarbingur
á Framvellinum.
Annars var stungið
upp á mörgum
stöðum til að geyma
síldina: „Ein tillagan
var sú að láta rýma
verbúðirnar á
Grandagarði og
hvolfa sitdinni ofan i
þær um þakglugga,
önnur um að fylla
Fiskiðjuver rikisins af
bræðslusíld og tveir
komu með tillögu um
það að nota laug-
arnar í Sundhöll
Reykjavikur og
Sundlaugunum sem
síldarþrær og voru
þessar tillögur gerðar
í fúlustu alvöru."
17