Ný saga - 01.01.1995, Page 77

Ný saga - 01.01.1995, Page 77
Almenna bænarskráin, tveggja alda afmæli hækkuðu í verði og hrakaði að gæðum. Jafn- framt varð umtalsvert verðfall á flestum gjaldvörum landsmanna og sumum jafnvel hafnað á verslunarstöðum eða miklu meira vinsað úr þeim en áður. Vonbrigði og reiði á íslandi íslendingar höfðu takmarkaða aðstöðu til að gera sér fulla grein fyrir áhrifum stríðsins á verslunina. Sú staðreynd blasti hins vegar við þeim, að kaupendur konungsverslunareigna eða fastakaupmenn voru orðnir nær einir um hituna í verslun landsins. Beinast lá við að kenna þetta fyrrgreindum tilskipunum frá 1792 og 1793, sem höfðu hér vissulega mikil áhrif og vitað var að ýmsir þessara kaup- manna höfðu komið til leiðar með síendur- teknum kvörtunum og kærum í Kaupmanna- höfn. Auk þess að banna íslenskum embætt- ismönnum alla hlutdeild í versluninni hafði Rentukammerið skrifað stiftamtmanni og amtmönnum strengileg bréf haustið 1791 út af slíkum orðrómi, sem var greinilega runninn undan rifjum kaupmanna. Höfðu þó embætt- ismenn og aðrir efnamenn í landinu verið í upphafi fríhöndlunar hvattir án undantekn- inga til að leggja fé í verslun og önnur nytsam- leg fyrirtæki þar. Til viðbótar almennri óánægju í landinu yfir stórversnandi verslunarkjörum þóttust ís- lenskir embæltismenn hafa gildar ástæður til reiði og tortryggni, ekki aðeins gagnvart kaupmönnum heldur og embættismönnuin f Rentukammeri og sölunefnd verslunareigna konungs fyrir tvískinnung. Reynslan hafði þegar sýnt, að kaupendum konungsverslunar- eigna varð mun betur ágengt við að ná fram hagsmunamálum sínum hjá ráðamönnum í Kaupmannahöfn heldur en íslenskum embætt- ismönnum, sem kvörtuðu yfir einhverjum vansmíðum á fn'höndlunarlögunum eða mis- tökum í framkvæmd þeirra. Þetta fékk t.d. Stefán Þórarinsson, amtmaður í norður- og austuramti, mjög að reyna er flestum urnbóta- tillögum hans var oftast nær umsvifalaust hafnað. En vegna lítillar sem engrar sam- keppni var verslunin jafnan afar óhagstæð íbúunum norðanlands og austan.8 Verðlagstaxta og vörueftirlits saknað Auk þess sem nú hefur verið bent á, verður að hafa það í huga að fríhöndlunin hafði í för nteð sér ýmsar verulegar breytingar á þeim verslunarháttum sem íslendingar höfðu lengi átt að venjast. Ein róttækasta breytingin var sú, að í stað stjórnskipaðs verslunartaxta skyldi vöruverð framvegis vera samkomulagsatriði milli kaupmanna og landsmanna. Höfundar fríhöndlunarlaganna í landsnefndinni frá 1785, sem voru síðan flestir skipaðir í sölu- nefndina, voru furðubjartsýnir á það, að þrátt fyrir einangrun landsins og samgönguleysi innanlands, yrði nægileg samkeppni í verslun- inni til þess að hún reyndist hagstæð lands- mönnum, svo sem varðandi verðlag og magn og gæði innfluttra vara. í samræmi við það var kveðið svo á í verslunartilskipuninni frá 13. júní 1787 (II, 14) að samkvæmt eðli frjálsrar verslunar væri ekki hægt að bera fram neinar almennar kærur yfir háu verðlagi eða slæm- um vörum. Hér var einmitt um þau atriði að ræða, sem höfðu lengst einokunar verið helstu kvörtun- arefni íslendinga ásamt kærum yfir skorti á ýmsum brýnustu nauðsynjavörum. Að vísu var svo til ætlast að embættismenn hefðu áfram dálítið eftirlit með því, að helstu nauð- synjavörur væru til í verslunum og ekki væru seldar þar matvörur er hættulegar gætu talist heilsu manna. Að öðru leyti var dregið að mun úr fyrri réttindum embættismanna í landinu til afskipta af versluninni, sem höfðu einkurn verið mikil í tíð konungsverslun- arinnar síðari. I staðinn var meira að segja lögð í verslunartilskipuninni (II, 22) áhersla á skyldur embættismanna til að vera hjálpsam- ir við kaupmenn. íslenskir embættismenn voru allt annað en ánægðir með þessar breyt- ingar, enda töldu þeir ekki vanþörf á ströngu eftirliti með versluninni, slíkur einokunar- bragur sem varð víða á henni eftir tilkomu frí- höndlunar. íslendingum brá einna rnest við það að hafa ekki lengur neinn opinberan taxta að styðjast við um ‘verð á innfluttum vörum og á eigin vörum. Þeir höfðu enga aðstöðu til að fylgjast með verðlagi erlendis og urðu hvort 75
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Ný saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.