Ný saga - 01.01.1995, Page 78

Ný saga - 01.01.1995, Page 78
Sigfús Haukur Andrésson Umbótakröfur tendraðar erlendum frelsishugsjónum Almenna bœnarskráin er, eins ogfyrrseg- ir, dagsett á Alþingi við Öxará 24. júlí 1795. Gömul venja var að stað- og dag- setja slíkar bœnarskrár þar, og hún hélst eftir að Alþingi varð aðeins dómþing með einveldishyllingunni 1662, enda hittust fyrirmenn landsins eftir sem áður árlega þar. Þótt bænarskráin sé stíluð til Krist- jáns konungs VII., var hún að sjálfsögðu œtluð Friðriki krónprinsi (síðar konungi VI.) sem hafði vegna geðveiki föður síns farið með konungsvaldið síðan 1784. Bœnarskráin er allmikið skjal og nokkuð langdregin á pörtum. Texti hennar nœr yfir rúmar 30 blaðsíður í prentuðu útgáf- unni frá 1797, sem er í áttablaðabroti. Þar við bætast álíka löng og ennþá stóryrtari álitsgerð Stefáns Þórarinssonar og stutt meðmœli Joachims Vibes amtmanns í vesturamti.'2 Ólafur Stefánsson hœtti hins vegar við að mæla með bœnarskránni eins og síðar getur nánar. Bænarskráin er aðeins til á dönsku, en hér skulu tekin nokkur dœmi úr henni í ís- lenskri þýðingu greinarhöfundar og vísað jafnóðum til blaðsíðutala prentuðu útgáf- 3í Almenna bœnarskráin hefst á þessa leið: tímum hins glæsilega forna þjóð- veldis naut ísland, erfðaland yðar . konunglegu hátignar, ávaxta 'langvarandi og heillavænlegs frelsis sem frjálst og fullvalda ríki. En fyrst og fremst frelsið er þess megnugt að móta heila þjóð í samræmi við það sem náttúran ætl- ast til að sé mönnum fyrir bestu. Sagan sannar að þá voru íslendingar gæddir hreysti, hugprýði, heilbrigði og dugnaði. Efnahagur þeirra og menning voru blóm- leg og þeir undu glaðir við sitt, þó að landið væri harðbýlt. Þannig hélst þetta meira að segja lengi eftir að landsmenn, af frjálsum vilja og að undangengnum fortölum, gengu Noregskonungi á hönd. Harðæri og landplágur urðu þess svo valdandi að íslendingar misstu verslun- ina úr höndum sér og urðu að búa við fé- flettingu miskunnarlausra verslunarfé- laga og einokunarkaupmanna, sem drápu niður forna iðni þeirra og framtakssemi (bls. 3-4). Pað varð hlutskipti mildrar stjórnar yðar konuglegu hátignar að leysa íslendinga úr viðjum langvinnrar, hörmulegrar og þrúgandi einokunar. Þær vonir, sem ís- lendingum voru gefnar árið 1786 um frjálsa verslun og rækilegur undirbúning- ur að henni þá og árið eftir, endurvöktu hug þeirra og dug. Með ákafri eftirvænt- ingu biðu þeir þeirrar heillavænlegu breytingar, að þeir endurheimtu frelsið, ein af frumréttindum mannsins, sem forð- um voru frá þeim tekin en eru eina leiðin þeim til viðreisnar og heilla (bls. 4-5). Um það að hin fyrirhugaða frjálsa verslun hafi snúist í andstœðu sína segir /neðal annars: Er í raun og veru unnt á nokkurn hátt að kalla þá verslun frjálsa íslendingum, sem meinar þeim viðskipti við alla aðra í víðri veröld en þá fáu kaupmenn er versla al- einir og telja sig eina hafa rétt til að ver- sla við Iandsmenn á hverjum verslunar- stað, kaupmenn, sem hafa gróðahyggj- una eina en engin önnur lög að leiðar- ljósi? Á flestum höfnum landsins er verslunin aðeins undir umsjón einnar búðarloku sem kallast faktor. Þessir fakt- orar fá við og við sendar slæmar og oft skemmdar vörur, jafnvel úrkastsvörur, nær eingöngu frá Kaupmannahöfn. Þessu pranga þeir inn á þurfandi menn á okur- verði og einungis gegn bestu gjaldvörum landsmanna, sem þeir verðleggja að eigin geðþótta. Jafnframt neyða þessir faktor- ar menn til að kaupa svo og svo mikið af óþörfum og lélegum varningi ásamt þeim nauðsynjavörum sem þá vanhagar um (bls. 6). Það er þannig bersýnilegt að verslunar- fyrirkomulag það, sem vér búum við, fel- ur í sér ófrelsi, kúgun og þrælkun gagn- vart Islendingum. Hins vegar er verslun- in ekki einungis frjáls kaupmönnum, ... verslunar- fyrirkomulag það, sem vér búum víð, felur t sér ófrelsi, kúgun og þrælkun... sem var að sætta sig við það verð, sem var ákveðið af kaupmönnum með meiri og minni einokunaraðstöðu. Auk þess tóku fríhöndl- unarkaupmenn unnvörpum upp að nýju þá gömlu viðskiptahætti einokunarinnar, sem höfðu lagst að mestu niður í tíð konungsversl- unar síðari, að láta menn því aðeins fá þær nauðsynjavörur sem þeir sóttust aðallega eft- ir að þeir keyptu jafnframt ýmsan miður nauðsynlegan eða alveg óþarfan varning.9 Greinilegt er að íslendingum var mjög heitt í hamsi á árunum 1794-97 út af slæmum verslunarkjörum. Það sýna m.a. þær fjöl- mörgu kærur og kvartanir, sem embættis- mönnum bárust þá hvaðanæva af manntals- þingum og þeir ítrekuðu síðan við Rentu- kammerið án þess að hafa af því árangur sem erfiði.10 76
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Ný saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.