Ný saga - 01.01.1995, Síða 85

Ný saga - 01.01.1995, Síða 85
Eggert Þór Bernharðsson Að byggja sér veldi Hugleiðing um húsagerðarlist „nýfrjálsrar"þjóðar tundum er sagt að fátæku fólki sem kemst í álnir hætti oft meira til að hríf- ast af yfirborðsgljáa en fólki sem á sér órofna hefð og trygga festu.* Sjái efnalítið fólk auðæfi fari það jafnvel ósjálfrátt að líkja eftir siðum svarts fugls sem forðum vaktaði hér býli. Ekki er laust við að þetta með hrafn- ana eigi við íslendinga fyrstu áratugina eftir stofnun lýðveldis því nýríku einkennin má sjá víða í umgjörðinni sem landsmenn smíðuðu sér eftir seinna stríð, svo senr í húsagerð, inn- réttingum og glingri. Að þessu leyti má til sanns vegar færa að umgjörð spegli innri mann. Hjá alþýðu kostuðu nýju lífsgæðin mikla vinnu og erfiði. Fólk bjó með minningu for- feðra sem setið höfðu á jaðri hungursneyðar öldum saman. Petta fólk fann hrikta í stoðum lífsbjargar þegar kreppa fjórða áratugar 20. aldar dundi yfir. Það ólst upp við þrengsli og skort og því strengdu margir þess þögul heit að búa sér og sínum skárri framtíð. Draurn- arnir skyldu rætast á börnunum. Þjóðin vildi hefja sig úr niðurlægingunni og sýna að hún stæði á sömu fótum og aðrar sjálfstæðar og „siðaðar“ þjóðir. Óráðin framtíð íslendingum var vandi á höndurn þegar þeir tókust á við gagngera uppbyggingu að lokinni síðari heimsstyrjöld. Þeir risu upp ríkir af stríðsgróða og urðu nánast að byggja hús sín frá grunni. Nágrannaþjóðirnar höfðu fyrir langa löngu fundið byggingarlist sinni fast svipmót, sem þær síðan treystu í sessi eða út- færðu á ýmsa vegu. En á Islandi var ekki að finna festu gróinnar borgmenningar.1 Þegar íslendingar ferðuðust til annarra landa á fyrstu áratugum 20. aldar blasti við þeim annað umhverfi en þeir áttu að venjast. Þannig var t.d. fyrsta ferð Haraldar Björns- sonar leikara (f. 1891) til Kaupmannahafnar haustið 1915 seiðmögnuð, ekki síst vegna „þeirrar dýrðar" sem fyrir augu hans bar þeg- ar siglt var inn Eyrarsund. Hann sagði svo frá: Ég stóð við borðstokkinn og starði frá mér numinn á borgina miklu sem framundan var. ... ég var ekki í skapi til þess að fara með bíl... [á áfangastað] heldur fór rakleitt frá borði og gekk upp í borgina. Og ég gekk og gekk. Ég vissi varla af mér og ég er sannfærður um að ég hef gengið í marga klukkutíma. Ég var gripinn einhverri ein- kennilegri sælutilfinningu.2 í huga Haraldar fléttuðust saman ólíkar kenndir, tilfinningar svipaðar því og maður finnur fyrir þegar rnaður stendur á háum fjallstindi og horfir yfir blómlega byggð. Mér fannst ég vera algerlega frjáls og öllum og öllu óháður. Svona gekk ég eins og í draumi og vissi ekkert hvert ég var að fara. ... Svo fór að dimma og þá heyrði ég eitthvert skrölt í fjarska og þóttist vita að það kæmi frá einhverju farartæki. Þarna var sporvagn á ferð, sem var á leið nið- ur á Ráðhústorg, og Haraldur fór með hon- urn: „Þeirri sporvagnsferð gleymi ég aldrei. Ég var blátt áfram töfraður af þessum stóru byggingum, búðunum og fólkinu og þó fyrst og fremst af andrúmsloftinu. Mér fannst ég vera kominn í annan heim.“ Skipulagsmál og bygging þéttbýlis „voru ákaflega fjarlæg í því staðnaða bændaþjóðfé- lagi, sem Islendingar byggðu.“3 Þegar þéttbýl- ið var farið að taka á sig mynd á öndverðri 20. 83
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Ný saga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.