Ný saga - 01.01.1995, Page 92

Ný saga - 01.01.1995, Page 92
Eggert Pór Bernharðsson Á vissum tíma- skeiðum vann byggingarhrað- inn fremur gegn byggingarlistinni en með henni Valdalitlir arkitektar? Margir virtust fremur líta á arkitektana sem leiðbeinendur við byggingu húsa en lista- menn og meistara sem hefðu vit og smekk sem vert væri að taka mark á. Fjöldinn í stétt- inni virtist í samræmi við þetta sjónarmið því fram á sjöunda áratuginn voru menntaðir húsameistarar enn fáir í Reykjavík, töldust lengst af innan við þrjátíu. Þessi hópur gat ekki sinnt öllum þeim verkefnum sem þurfti að leysa, enda lifði sú gamla hefð góðu lífi að ýmsir aðrir en þeir teiknuðu hús. Byggingar- lög gerðu ráð fyrir þessu þar sem ákvæði um sérmenntun í húsagerðarlist var þar ekki að finna.43 Árið 1978 var þó komið í lög, að rétt til að gera aðaluppdrætti og séruppdrætti af húsum og öðrum mannvirkjum hefðu arki- tektar, byggingarfræðingar, tæknifræðingar og verkfræðingar, hver á sínu sviði, auk þess mættu búfræðikandidatar úr tæknideildum búnaðarháskóla með tiltekna starfsreynslu sinna landbúnaðarbyggingum. Hins vegar héldu aðrir sínum rétti til að teikna hús, sem höfðu hlotið hann áður en lögin gengu í gildi. Þetta var síðan áréttað í byggingarreglugerð árið 1992.44 í upphafi áttunda áratugarins var fullyrt að arkitektar teiknuðu „í mesta lagi 10%“ af því sem væri byggt. Þessi tala var endurtekin um 1980.45 Þeir sem höfðu numið húsagerðarlist studdust oft við aðrar forsendur en hinir, sem ekki voru sérmenntaðir á því sviði, og því kannski vart að furða að arkitektar kvörtuðu yfir því að aðrir en húsameistarar teiknuðu hús.46 En kringumstæður í Reykjavík eftir seinna stríð kölluðu öðrum þræði á þetta fyr- irkomulag þar sem hraða þurfti uppbyggingu höfuðstaðarins og koma til móts við allan þann fjölda sem eygði möguleika á að eignast húsnæði. Á vissum tímaskeiðum vann byggingar- hraðinn fremur gegn byggingarlistinni en með henni. Tíminn frá því að lóð var úthlut- að og þar til tilvonandi íbúar kröfðust þess að hafist yrði handa um byggingu viðkomandi húss var oft ansi skammur. Ekki var alltaf hlaupið að því að fá lóðir undir hús því tíma tók að gera land byggingarhæft og þar mæddi á yfirvöldum bæjanna. Þau reyndu að leggja sig fram um holræsagerð, vatnsveitu, hita- veitu, rafmagn og þvíumlíkt. I Reykjavík vildi byggðin dreifast svo að yfirvöld urðu að búa í haginn fyrir húsbyggingar víða í bæjarland- inu, verkefnin voru svo sundurleit. Undirbún- ingurinn var bæjarfélaginu dýr áður en hús- byggjendur fóru að taka þátt í kostnaðinum með gatnagerðargjöldum, en vísir að þeim kom ekki til fyrr en um 1960.47 Þegar lóð og byggingarleyfi loksins fékkst vildi margt fólk hafa hraðar hendur og drífa hús sín upp á sem skemmstum tíma. Allt skyldi gerast með leifturhraða. Menn þrýstu bæði á húsameistara og þá sem byggðu. Sumir arki- tektar undu þessu þó ekki og neituðu jafnvel að teikna nema fá til þess skikkanlegan tíma. Iðulega kom fyrir að verkefni voru fengin í hendur húsameisturum með því skilyrði að umbeðinn uppdráttur kæmist „fyrir næsta byggingarnefndarfund“ en vinnubrögð af því tagi buðu ósjaldan heim vandræðum og káki, sem gátu síðan haft í för með sér aukinn kostnað. Húsameisturum þótti ekki til of mik- ils mælst að tveir til fjórir mánuðir væru ætl- aðir til undirbúnings húsakosti sem standa ætti um ókomna framtíð. Undir lok sjötta ára- tugarins var á það bent, að víðast annars stað- ar væri ekki hafist handa um húsbyggingu fyrr en gengið hefði verið að fullu frá bæði frum- uppdráttum og séruppdráttum, er sýndu greinilega hvern áfanga framkvæmdanna.4ti Húsameistarar voru ekki aðeins argir yfir asanum á fólki. Suntir voru lítt hrifnir af ýms- um hugmyndum almennings um útlit húsa og voru tregir að fylgja þeim eftir, lögðu til aðra og að þeirra dómi betri og smekklegri kosti. En menn sem vildu komast sem fyrst undir nýtt þak máttu stundum ekkert vera að því að bíða eftir slíkum vangaveltum og sneru sér þá frernur til þeirra sem treystu sér til að vinna verkið á skjótan hátt og létu sér vel líka tillög- ur urn útlit. Hætt var þó við því að hraðinn bitnaði á arkitektúrnum og þar með ásýnd byggðarinnar.41' Hraðinn kom ekki bara til af persónulegu óþoli, húsnæðisvandræðin í Reykjavík voru slík á fimmta og sjötta áratugnum að nauð- synlegt var að byggja sem mest á sem skemmstum tíma og með sem minnstum til-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Ný saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.