Ný saga - 01.01.1995, Side 103
Hvíta stríðið
kvöld daginn eftir. Þegar Hjörtur [Björnsson]4
fór heim að borða um hádegið var honum
varin gatan hér heim að norðan svo hann
varð að fara kringum alla Tjörn til að komast
heim. Finnur [Jónsson]5 stóð hér rétt hjá hús-
inu en fékk ekki að komast inn til að borða
fyrr en klukkan langt gengin 2, þegar fylking-
ar tóku að þynnast eftir handtökuna miklu.
Það er nú sýnilegt að það sem undir þessum
ósköpum hefir búið og ýtt þeim af stað hefir
ekkert annað verið en bolsivikahræðsla, en
þetta með rússneska drenginn haft að yfir-
varpi. Hefði einhver ríkisburgeisinn komið
með þennan dreng og tekið sér hann munað-
arlausan í sonar stað þá hefði ekki þurft að
vísa honurn úr landi, jafnvel þótt hann hefði
trachoma. Pað sést best á öllum þessum að-
förum, ruddaskap og lögleysur af þessum
trantaralýð senr fjölda margir voru áður
margfaldir lögbrjótar. Húsið sem Ólafur
leigði í allt brotið og skemmt, hurðir brotnar
af hjörum, fleygt út og fluttar burt, líklega
stolið, heimilið í rústum, þegar konan fékk að
fara heinr í fyrrakvöld, engin hirsla óbrotin
upp, kommóðuskúffur og annað, öll einka-
bréf hennar skoðuð, öll bréf Ólafs, skjöl
o.þ.h. tínt saman og flutt í bala ofan í Iðnó á
„lögreglustöðina" og skoðað og sumt af þeim
týnt og ýmislegt fleira, og þó var vörður hald-
inn urn húsið nótt og dag. Petta er réttvísin í
hinu unga fullvalda ríki. Konan og drengur-
inn voru flutt á Franska spítalann og er
drengurinn þar enn, og er stúrinn og hræddur
og reiður, konan var hrakin og hrjáð og tor-
tryggð á allar lundir, og litlu drengirnir henn-
ar fengu ekki einu sinni að tala við hana þar
nema lögreglan stæði yfir þeim. Og þó var
hún ekki fangi. Ólafur og nokkrir menn aðrir
sitja enn í steininum, hinum var sleppt út.
Hann var hinn rólegasti og sofnaði rétt strax
er hann var þar kominn - örmagna af svefn-
leysi orðinn og leiðindum. Hann kvað ekki
vilja neyta neins. Nefnd úr stjórn Alþýðu-
flokksins hafði mjög leitað um sættir, og gekk
Stjórnarráðið Ioks inn á miðlun sem nefndin
taldi viðunandi en því hafnaði Ólafur hvernig
sem farið var að, hann gat ónrögulega beygt
sig. Pá lýsti Alþýðuflokkurinn hlutleysi sínu í
þessu máli með því það væri einkamál, og það
kom út í Alþýðublaðinu á þriðjudaginn svo
að það var algerður óþarfi fyrir hina að hefja
svona mikinn gauragang og lögleysur. Al-
Mynd 1.
Hvítliðar beittu ýmsum
brögðum til að komast
inn í Suðurgötu 14.
Meðal annars
reistu þeir stiga bak
við húsið og reyndu
að komast inn um
þakglugga.
101