Ný saga - 01.01.1995, Side 105
Hvíta stríðið
bönnuð yrði með öllu öll skotfélög og vopna-
burður hér á landi. Ólafur kom á fundinn og
hélt ræðu og ætlaði fagnaðarlátum fólksins
aldrei að linna yfir því að sjá [hann] aftur úr
helju heimtan. Loksins fór það að sjá hver
maður Ólafur er. Ræðumenn voru margir, og
var fundurinn hinn ágætasti í alla staði. Að
honum loknum, klukkan langt gengin 11, hélt
mannfjöldinn eins og lygn og þungur straum-
ur heim til bústaðar Ólafs og hyllti hann þar
með húrrahrópum, söng og ræðum. Kona
hans þakkaði hlýlega, en Ólafur var þá niðri á
bæjarstjórnarfundi (lá ekki í rúminu eftir
sveltið), var sent eftir honum og kom hann er
þeim fundi var slitið klukkan að ganga 12.
Hann þakkaði heimsóknina með vel völdum
orðum eins og vant er og árnuðu menn hon-
um og þeim hjónum langra lífdaga með
húrraópi, og fór svo hver heinr til sín. Eitt-
hvað af andstæðingum sá og heyrði, það var
þeim til sálubótar; þeir létu sér hægt þá.
„Drengurinn okkar“ fór til sósíalista í Dan-
mörku. Hann kveðst rnunu heimsækja Island
aftur. Petta allt hefir orðið til alvarlegrar
vakningar meðal veikalýðsins, hér og úti urn
land. Vopnið hefir snúist í hendinni á hvítu
ribböldunum. En illa lætur Morgunblaðið.
Ólafur er tekinn við Alþýðublaðinu aftur og
skrifar nú hverja ágætis greinina á fætur
annarri urn þessa forsmán alla, og frekjulaust;
þeim svíður að ráða ekki við hann.
Tilvísanir
1. Handriladeild Landsbókasafns. Lbs. 2237, 8vo. Dag-
bók Elku Björnsdóttur frá Skálabrekku. Frá 3. mars 1920
til Jónsmessu 1923. Texti Elku er birtur orðréttur en leyst
er úr öllum skammstöfunum. Heiti dagblaða eru alltaf
skáletruð. Annað sem skáletrað er í textanum hefur Elka
sjálf undirstrikað.
2. Elka Björnsdóttir var einn af stofnendum Alþýðu-
flokksins. Hún vann rnikið fyrir flokkinn, einkum við
undirbúning kosninga og starfaði þá töluvert með Olafi
Friðrikssyni.
3. Elka vann við ræstingar í Tjarnargötu 12. Par var
Slökkvistöðin til húsa, skrifstofa borgarstjóra og bæjar-
gjaldkera. Elka bjó í húsinu og hafði aðgang að öllum
vistarverum byggingarinnar. Hún var því í mjög góðri að-
stöðu til að fylgjast með öllum viðbúnaði yfirvalda.
4. Hjörtur Björnsson myndskeri var bróðir Elku og bjó
jafnan hjá systur sinn þegar liann var í Reykjavík.
5. Finnur Jónsson listmálari var gestur hjá Elku í rúmar
sex vikur í árslok 1921. Þeir Hjörtur bróðir Elku og Finn-
ur voru báðir við nám í Kaupmannahöfn veturinn
1920-1921 og leigðu þá saman. Sbr. Margrét Guðmunds-
dóttir, „Alþýðukonan og listin“, Ný saga 5 (1991), bls.
16-25.
Mynd 9.
Hvítliðar á verði við
Hegningarhúsið á
Skólavörðustíg.
Fyrstu nóttina sem
Ólafur og stuðnings-
menn hans sátu í
varðhaldi voru
hvítliðar á verði þar.
Þeir komust í áfengi
sem gert hafði verið
upptækt og geymt var
í húsinu. Stóð mikill
gieðskapur alla
nóttina. Munu hinar
„vösku" varðsveitir
hafa verið heldur
framiágar þegar þær
voru leystar af verði
morguninn eftir.
103