Birtingur - 01.01.1966, Page 12

Birtingur - 01.01.1966, Page 12
Fyrsta kvæði bókarinnar (IV, 16), bezta kvæði Ljósvíkíngsins, er vitaskuld ort til Jórunnar. Það sést, að ÓlaEur er byrjaður að gera sér grein fyrir því, að honum cr ómögulegt að lifa samkvæmt lögmálum þessa heims: E£ hjarta mitt er valtast alls hins valta í völtum heim, þá hlýt ég, ást mín, láta skeika að sköptu við sköpum þeim, en þó var, ást mín, síðan guðir geingu um garða hér, ei heitar unnað mjúkri mey á jörðu af manni en þér. En viljirðu, ást mín, hverfleik hjartans skilja: að hált og valt það er að elska, vona, treysta og vilja, — þá veistu alt; og svipulleikans tákn: mitt hálfa hjarta — mitt heila líf — mun aldrei verða vonsvik þín né glötun, en vörn og hlíf. Eftir tukthúsvistina hittir Ljósvíkíngurinn stúlkuna, sem hann nefnir Beru. Þessi stúlka er enn ein tilraun hans til að finna eitthvað í þessum heimi sem endurspeglar hina algjöru fegurð (IV, 237). Við tvö og ókunn skip á lofti og legi, (litkaðir hausti stóðu akrar slegnir) bundin voru örlög okkar stað og degi allra sem daprir kveðja og heilsast fegnir. Við stöndum þögul, þú og ég. Og sólin þerrar af himni sínum mistrið kalda, og opnar leiðir þeim er heim skal halda og hinum sem fer burt að sitja jólin. Ó undur minna augna! Ég heilsa þér! — eða er það kveðja manns sem sífeldlega er dæmdur lengra burt frá sjálfum sér? Hvort er ég hann sem kom eða hinn sem fer? Það eitt ég veit: þín fegurð fylgir mér hvert fótmál hinna endalausu vega. Eins og sést hér, hefur skáldið byrjað að efast um, að þessi heimur og skáldheimurinn eigi nokkra samleið. Þar sem hann er þvingaður til að lifa í þeim báðum, hefur hann byrjað að finna til vaknandi öryggisleysis um sína eigin tilveru. Hér er greinilega um vaxandi sturlun að ræða, óvissu kleifhugans um hver hann í raun og veru er. Tvö fyrstu kvæði í Fegurð himinsins eru beztu kvæði Ljósvíkíngsins. Úr þessu fer gáfa hans 10 BIRTINGUR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110

x

Birtingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.