Birtingur - 01.01.1966, Blaðsíða 85

Birtingur - 01.01.1966, Blaðsíða 85
í sveit, en það er einsog hugsunin hlaupi í bak- lás þegar mönnum reynist ofviða að draga réttar ályktanir af því að við lifum ekki leng- ur á þrettándu öld. Það var sú öld þegar al- þingi íslendinga var uppi í sveit og munkar sátu í klaustrum við skriftir. Sú öld er liðin. Og þær aldir sem síðan komu, þær svörtu aldir þegar bragðdauft rímnagutl var helzta andleg næring með þrautkúguðum vesalingum danskrar nýlendu, þær aldir eru liðnar. Borg- armenning er að vaxa þar sem bær Ingólfs stóð forðum á nesi því sem Karla þræli þótti ófýsilegt, eftir að hafa farið um blómlegar sveitir. Hugur hans var í sveitinni, einsog vera bar. Það var eðlilegt í bændaþjóðfélagi að menn- ingarsetrin risu upp í sveitum landsins. Hvar hefðu þau annars staðar átt að vera? Úti í sjó? Landið var ekkert nema sveit. Það var eins eðlilegt að bækur væru í þá daga saman settar innan um kýr og hesta og það er óeðlilegt nú á dögum og harla fáránlegt að láta sveitamenn hlaupa frá fjósverkum einu sinni á ári til að ráðsgast með listamannafé það sem veitt er árlega úr ríkissjóði í því skyni að efla bók- menntir og listir, enda hafa þeir ekki kunnað betur með það að fara en veita hagyrðingun- um í sveitinni sinni styrk til að yrkja lausa- vísur. Þessir menn, sem eflaust hafa sjálfir einhverntíma sett saman vísur um hrosshófa og beljurassa mönnum til skemmtunar á hér- aðssamkomum, einsog sjálfsagt er &g þjóðlegt, en hafa á hinn bóginn smávægileg kynni af nútímabókmenntum, eiga hrós skilið fyrir þá ofdirfsku að ætla sér að fara til borgarinnar og vega þar og meta nýjustu stefnur í bók- menntum, tónlist, málaralist, höggmyndalist ofl. Það þarf mikla dirfsku til. Hitt er verra að þessi fíflskapur hefur haft þær grátlegu afleiðingar að hagmælska og eft- iröpun er nú orðið einhverskonar gæðamark, ekki einungis á bókmenntum, heldur öllum listgreinum. Blöð og útvarp leggjast á eitt að upphefja lágkúruháttinn á kostnað lifandi listar. Var átakanlegt í vetur að heyra allt það vísnastagl lágkúrunnar sem þulið var í eyru hlustenda, þar sem hvergi örlaði á minnilegri hendingu, þar til einn listamaður í Bragatúni, margstimplað atómskáld, setti í skyndingu saman vísu sem ein er minnileg úr þessum þáttum. Skáld þetta, Jón úr Vör, sem hefur lagt meiri skerf til íslenzkrar Ijóðlistar en flestir menn núlifandi, ætti að fá listamanna- laun í samræmi við það, en vitanlega hafa kýrrassamenn þeir sem ráðstafa listamannafé ekki vit á að meta hann. Nú hlaut hann að ganga fyrir hagyrðingadómstól útvarpsins og taka á móti verðlaunum, — fyrir lausavísu. Mér er kunnugt um það að Jón vildi nota tækifærið og þakka á viðeigandi hátt fyrir liIRTINGUR 83
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.