Ritmennt - 01.01.2005, Blaðsíða 143
RITMENNT
ODDUR NORSKI OG NÝJA TESTAMENTIIÐ 1540
fengið löggildingu á alþingi.46 Gera má ráð
fyrir, að þeir frændur liafi litið á ísland sem
hérað í Noregi fremur en sérstakt ríki. í
biskupstíð sinni jók Gottskálk eignir stóls-
ins um 21 hundruð hundraða og var það
ófafé.47
Gottskálk biskup átti að minnsta kosti
tvö ef ekki þrjú börn, þau Kristínu (um
1490-um 1578), sem í flestum heimildum
er talin elst, með Valgerði Jónsdóttur, Odd
(1495/6?—1556) og ef til vill Guðrúnu með
Guðrúnu Eiríksdóttur.48 Hann gerði Kristínu
dóttur sína afar vel úr garði, þegar hún árið
1508 gekk að eiga sunnlenskan höfðingja,
Þorvarð Erlendsson (d. 1513), sýslumann og
lögmann sunnan og austan.49 í kaupmála
gekk biskup mjög tryggilega frá fjárhag dótt-
ur sinnar, „gifti hana svo í helmingafélag
til alls þess fjár er þá átti hann [Þorvarður]
eða eigandi að yrði með erfðum eða öðrum
hlutum".50 Gaf Gottskálk Kristínu í heim-
anfylgju þrjú hundruð hundraða í jörðum
og tvö hundruð hundraða í lausafé af pen-
ingum Hólastóls. Taldist þetta vera löggjöf
og lögðu prestar Hólabiskupsdæmis blessun
sína yfir þessa ráðstöfun, enda hafði stað-
argóssið aukist um 9 hundruð hundraða
í jörðum og önnur 9 hundruð hundraða í
lausagóssi síðan Gottslcálk tók við biskups-
embætti laust fyrir aldamótin 1500.51
í kaupmálabréfi þeirra Kristínar og
Þorvarðar er reyndar kveðið á um, að
Kristín legði 5 hundruð hundraða í jörðum
og 2 hundruð hundraða í lausum aurum
til þessa hjónalags.52 Hafa því faðir hennar
eða móðurfrændur væntanlega bætt þarna
við 2 hundruðum hundraða af eigin fé.
Sömuleiðis tryggði Gottskálk biskup vand-
lega hag dóttur sinnar með kaupmálabréfi,
þegar hún giftist seinni manni sínum, Jóni
Einarssyni sýslumanni að Geitaskarði í
Húnavatnssýslu. Lét biskup m.a. af hendi
við hana jörðina Ey á Skagaströnd, sem
metin var til 60 liundraða.53 Af þessum
gjörningum má sjá, hversu vel norsldr
höfðingjar gættu hagsmuna dætra sinna og
frændkvenna. Þetta er einnig góður vitn-
isburður um þann hug, sem Gottskálk bar
til dóttur sinnar, og siðvenjur í fjölskyldu
hans um fjárliag ungs fólks, sem kornið
var á giftingaraldur. Ekki eru til lieimildir
um það í íslensltum sltjölum að Gottskálk
biskup hafi gefið Oddi syni sínum löggjafir.
Guðrúnar er hvergi getið í íslenzku forn-
bréfasafni.54
46 JónHalldórsson, „Hólabiskupar I—II. XX. Hólabiskup
Gottskálk Nilculásson" JS 69 fol. II (án blaðsíðu-
tals).
47 Jón Halldórsson, „XX. Hólabiskup Gottslcálk
Niltulásson" (án blaðsiðutals). Lögerfingjar tólcu í
arf eftir biskup 1/10 af erfðafé og 1/4 af aflafé. D1
VIII, nr. 555, XII, nr. 131.
48 Páll Eggert Ólason, íslenzkar æviskrár II, bls. 11-
12.
49 Bogi Benediktsson, Sýslumannaæfir IV, bls. 234-
36.
50 DI VIII, nr. 194.
51 DI VIII, nr. 237, 253.
52 DI VIII, nr.194.
53 DI VIII, nr. 554. í kaupmálabréfi þeirra hjóna er
kveðið á um, að Jón Einarsson leggi fram 7 hundruð
hundraða í jörðum og lausafé, en Kristín 3 hundruð
hundraða í jörðum og 2 hundruð hundraða í lausafé,
og var það fé það, sem Gottskálk faðir hennar hafði
áður gefið henni. DI VIII, nr. 415.
54 Jón Gizurarson og Jón Egilsson geta um Guðrúnu
Gottskálksdóttur. Hún á að hafa verið festarmey
Gizurar Einarssonar en eignast þríbura meðan hann
var erlendis með Eysteini nokkrum Þórðarsyni. Jón
Gizurarson segir hana hafa verið konu þversinnaða
og hafi hún dáið að Reylcjum í Ölvesi hjá Oddi bróð-
ur sínum. Jón Gizurarson, „Ritgjörð", bls. 689; Jón
Egilsson, „Biskupa annálar", bls. 84. Óneitanlega er
noltkur slúðurkeimur af þessari frásögn. í reiknings-
139