Ritmennt - 01.01.2005, Blaðsíða 40

Ritmennt - 01.01.2005, Blaðsíða 40
JÓN AÐALSTEINN JÓNSSON RITMENNT í sjóferðum. Guðrún Pálsdóttir er löngu dáin." - Veit Þórður ekki, hvað orðið hefur um himnabréfið eftir hennar dag. „Himnabréf verndar menn gegn hættum á sjó og landi, sagði gamla fólkið. Fyrst sá ég það hjá Sigurbjörgu Guðmundsdóttur á Syðstu-Grund undir Eyjafjöllum (f. 1852) og vissi að hún hafði það í metum. Fleiri hafa orðið á vegi mínum." - Aðspurður heldur Þórður, að himnabréfið, sem hann sá á Syðstu-Grund, hafi farið forgörðum eftir daga Sigurbjargar, „eins og fleira af hennar munum", bætti hann við. Eins og ég vék að í upphafi þessarar rit- gerðar, þykir mér líklegt, að föðurfólk mitt úr Meðallandi hafi lagt nokkurn trúnað á þann boðskap, sem fólst í Hb, að minnsta kosti um það að halda hvíldardaginn heil- agan. Til þess benda ýmis atvik, sem ég bæði heyrði talað um og eins reyndi sjálfur með nokkrum hætti. Hins vegar barst efni Hb aldrei í tal við mig, svo að nú er erfitt eða ógerlegt að fullyrða noklcuð um það, hver voru hugsanleg áhrif þess á föðurfólk mitt. Hinu má svo ekki heldur gleyma, sem sr. Jónas á Hrafnagili segir í Islenzkum þjóðháttum um sunnudagshelgi og vitn- að er til hér framar. Aftur á móti hef ég enga vitneskju um það, að afi minn, sem var margar vertíðir formaður á árabát, sem Blíðfari hét og meðallenzkir bændur reru á til fiskjar, hafi haft inni á sér himnabréf sér og bátsverjum sínum til verndar eins og Páll Árnason á Setbergi í Nesjum hafði að sögn Þórðar í Skógum. Ekki verður annað skilið af frásögninni af hornfirzlca bóndanum, sem bar á sér himna- bréf á sjó í glímu við sjálfan Ægi lconung, en hér sé komin sama trú á verndarmátt bréfs- ins og þeir höfðu, sem lögðu til orustu við óvini sína. Bréfið verndaði þá, sem það báru á sér, frá öllu grandi. í þessu Ijósi er þess vegna frásögnin um hornfirzka bóndann hin merkilegasta. Ekki þyldr mér ólíklegt, að aðrir bændur, sem sjó stunduðu á bátskelj- um sínum, hafi gert hið sama, þótt ég hafi ekki haft spurnir af því. En nú skal snúa sér sérstaklega að sunnu- dagshelgi himnabréfsins. Ég man það, að faðir minn sagði mér, að afa mínum hefði ekki verið ljúft að vinna það verk á helgidegi, sem hann taldi geta beðið til rúmhelgra daga. Sörnu sögu mátti einnig segja um föður minn. Þar á meðal var það að vinna við heyskap á sunnudegi, jafnvel þótt óþurrkar hefðu gengið næstu daga eða vikur á undan. Nefni ég hér á eftir nokkur atriði þessu til staðfestingar. Eins og þegar hefur komið fram, var allt föðurfólk mitt ættað austan Mýrdalssands og nánar til tekið úr Meðallandi og af Síðu. Þá hef ég getið þess, að þau Ormur og Guðrún voru bæði kirkjurækin og héldu hvíldardaginn, það er sunnudaginn, ævin- lega í heiðri og unnu ekki nema hin nauð- synlegustu störf þann dag. Árið 1905 gerðist svo það, sem var áreið- anlega ekki algengt á þeim tíma, að þau hjón tóku sig upp af jörðinni Efri-Ey, þar sem þau höfðu búið í 18 ár, og fluttust búferlum út í Mýrdal með allan sinn búskap og settust að á Kaldrananesi, sem þá var laust til ábúðar. Tildrögin til þessa voru fyrst og fremst þau, að landrými var lítið í Meðallandi, enda margbýlt á mörgum jörðum. Þannig voru átta búendur í Efri-Ey um þessar mundir og því orðið mjög þröngt um fjölskylduna, því að börnin voru orðin átta. Raunar voru þau 36
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172

x

Ritmennt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ritmennt
https://timarit.is/publication/859

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.