Vera - 01.02.2002, Page 6

Vera - 01.02.2002, Page 6
Spurning mánaðarins Hver er uppáhalds femínistinn þinn? Baldur Már Jónsson Mér finnst Jóhanna Sigurðardóttir langflottust. Arinbjörn Hauksson Ég veit það ekki, þetta eru allt brjálaðar konur. Sólveig Stefánsdóttir Nicole Kidmann, hún er yfirlýstur femínisti. Sigurbjörg Viðarsdóttir Siv Friðleifsdóttir umhverfis- ráðherra. Hanna Kristín Stefánsdóttir Loftur Guttormsson, hann er femínisti frá toppi til táar. Loftur Guttormsson Tja, fyrir utan mig sjálfan, er það auðvitað Simone de Beauvoir. Ég kynntist verkum hennar árið 1967 og hún er í miklu uppáhaldi. Þröstur Ólafsson Vigdís Finnbogadóttir auðvitað! Hún verður að teljast í uppáhaldi hjá mér. Þórunn Klemensdóttir Ég þekki enga femínista, nema auðvitað Þröst nokkurn Ólafsson Lesendabréf Feguröin og launaskalinn Sæl Vera! Ég er búin að vera að velta fyrir mér fréttum af síðustu launa- könnun VR. Mér finnst þessar kannanir svolítið skemmtilegar. Þær varpa svolítið hulunni af leyndardómnum á bak við launamuninn, jafnframt því að gera svolítið grín að honum í leiðinni. Fjölmiðl- arnir hafa hins vegar gert þeim undarleg skil og slegið fram að það merkilegasta í könnuninni sé t.d. að fríðar konur fái hærri laun en ófríðar. Þetta þykir þeim merkilegt og ekki laust við að maður sjái fyrir sér karlfréttamennina glotta meðan þeir skrifa fréttapistla í þessum dúr. Ha, ha, ha the pretty ones gets it all! Svona eins og nú hljóti allar konur aö flykkjast í lýtaaðgerðir til að fá hærri laun. Þegar maður (eða náttúrulega kona) svo skoðar könnunina betur kemur i Ijós að það eru þær konur sem gefa sjálfri sér háa einkunn á útlitsskalanum sem eru á hærri launum en hinar. Nú er hugtakið „fallegt" afskaplega afstætt en gerum ráð fyrir að flestar íslenskar konur, aldar upp á Marie Clarie og Cosmopolitan, líti á svipað útlit sem fallegt, þ.e.a.s. útiteknar, hraustar, grannar og hávaxnar konur með heilbrigt hár eru falleg- ar! Er þetta ekki nokkurn veginn uppskriftin? Þessi fréttaflutning- ur er búinn að fara svolítið í taugarnar á mér því mér finnst svo augljóst að hvort sem þessar konur sem gefa sér háa einkunn á útlitsskalanum séu I raun með þetta Marie Claire útlit eða ekki þá er það ekki það sem færir þeim háu launin heldur einfaldlega sjálfstraustið. Það þarf nefnilega bæði gott sjálfstraust til að gefa sér háa einkunn á útlitsskala og tii að biðja um launahækkun! Það segir sig sjálft að ef þú ert örugg meö þig ertu ákveðnari í launa- viðtölunum, ekki satt? Hvers vegna í ósköpunum eru fjölmiðlar alltaf svona uppteknir af útliti kvenna? Meira að segja þegar kem- ur að því að skoða launamun þá er útlit versus laun það sem er mest spennandi að skoða. Eru þessar hátt launuðu VR konur ekki bara einfaldlega með sjálfstraustið í lagi? Er þá ekki gáfulegra fyrir fréttamenn að blása það upp að konur sem eru með gott sjálfstraust séu með hærri laun? Ég vona svo sannarlega að VR haldi áfram að gera kannanirnar eins gagnlegar og skemmtilegar og hingað til en ég vildi óska að fjölmiðlar geri þeim betri og mál- efnalegri skil í framtíðinni. Afram fallegar og flottar VR konur! Sólveig Jónasdóttir VERA ER FLUTT Ritstjórnarskrifstofur Veru fluttu sl. áramót úr Hlaðvarpanum, Vesturgötu 3, vestur á Ægisgötu 4, í gamalt verslunarhúsnæði á götuhæð þar sem aðstaða er öll þægilegri og betri. Vera leigir húsnæöið ásamt Lauru Valentino útlitshönnuði blaðsins og Verksmiöjunni - hönnun og ráðgjöf, sem er nýtt fyrirtæki í eigu þriggja grafískra hönnuða og tveggja viðskiptafræðinga. Bríet félag ungra feminista heldur fundi sína í húsnæðinu. Símanúmer Veru er: 552 6310.

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.