Vera - 01.02.2002, Blaðsíða 6
Spurning mánaðarins
Hver er uppáhalds
femínistinn þinn?
Baldur Már Jónsson
Mér finnst Jóhanna Sigurðardóttir
langflottust.
Arinbjörn Hauksson
Ég veit það ekki, þetta eru allt
brjálaðar konur.
Sólveig Stefánsdóttir
Nicole Kidmann, hún er yfirlýstur
femínisti.
Sigurbjörg Viðarsdóttir
Siv Friðleifsdóttir umhverfis-
ráðherra.
Hanna Kristín Stefánsdóttir
Loftur Guttormsson, hann er
femínisti frá toppi til táar.
Loftur Guttormsson
Tja, fyrir utan mig sjálfan, er það
auðvitað Simone de Beauvoir. Ég
kynntist verkum hennar árið 1967
og hún er í miklu uppáhaldi.
Þröstur Ólafsson
Vigdís Finnbogadóttir auðvitað!
Hún verður að teljast í uppáhaldi
hjá mér.
Þórunn Klemensdóttir
Ég þekki enga femínista, nema
auðvitað Þröst nokkurn Ólafsson
Lesendabréf
Feguröin og launaskalinn
Sæl Vera!
Ég er búin að vera að velta fyrir mér fréttum af síðustu launa-
könnun VR. Mér finnst þessar kannanir svolítið skemmtilegar. Þær
varpa svolítið hulunni af leyndardómnum á bak við launamuninn,
jafnframt því að gera svolítið grín að honum í leiðinni. Fjölmiðl-
arnir hafa hins vegar gert þeim undarleg skil og slegið fram að
það merkilegasta í könnuninni sé t.d. að fríðar konur fái hærri
laun en ófríðar. Þetta þykir þeim merkilegt og ekki laust við að
maður sjái fyrir sér karlfréttamennina glotta meðan þeir skrifa
fréttapistla í þessum dúr. Ha, ha, ha the pretty ones gets it all!
Svona eins og nú hljóti allar konur aö flykkjast í lýtaaðgerðir til
að fá hærri laun. Þegar maður (eða náttúrulega kona) svo skoðar
könnunina betur kemur i Ijós að það eru þær konur sem gefa
sjálfri sér háa einkunn á útlitsskalanum sem eru á hærri launum
en hinar. Nú er hugtakið „fallegt" afskaplega afstætt en gerum
ráð fyrir að flestar íslenskar konur, aldar upp á Marie Clarie og
Cosmopolitan, líti á svipað útlit sem fallegt, þ.e.a.s. útiteknar,
hraustar, grannar og hávaxnar konur með heilbrigt hár eru falleg-
ar! Er þetta ekki nokkurn veginn uppskriftin? Þessi fréttaflutning-
ur er búinn að fara svolítið í taugarnar á mér því mér finnst svo
augljóst að hvort sem þessar konur sem gefa sér háa einkunn á
útlitsskalanum séu I raun með þetta Marie Claire útlit eða ekki þá
er það ekki það sem færir þeim háu launin heldur einfaldlega
sjálfstraustið. Það þarf nefnilega bæði gott sjálfstraust til að gefa
sér háa einkunn á útlitsskala og tii að biðja um launahækkun! Það
segir sig sjálft að ef þú ert örugg meö þig ertu ákveðnari í launa-
viðtölunum, ekki satt? Hvers vegna í ósköpunum eru fjölmiðlar
alltaf svona uppteknir af útliti kvenna? Meira að segja þegar kem-
ur að því að skoða launamun þá er útlit versus laun það sem er
mest spennandi að skoða. Eru þessar hátt launuðu VR konur ekki
bara einfaldlega með sjálfstraustið í lagi? Er þá ekki gáfulegra
fyrir fréttamenn að blása það upp að konur sem eru með gott
sjálfstraust séu með hærri laun? Ég vona svo sannarlega að VR
haldi áfram að gera kannanirnar eins gagnlegar og skemmtilegar
og hingað til en ég vildi óska að fjölmiðlar geri þeim betri og mál-
efnalegri skil í framtíðinni. Afram fallegar og flottar VR konur!
Sólveig Jónasdóttir
VERA ER FLUTT
Ritstjórnarskrifstofur Veru fluttu sl. áramót úr Hlaðvarpanum,
Vesturgötu 3, vestur á Ægisgötu 4, í gamalt verslunarhúsnæði á
götuhæð þar sem aðstaða er öll þægilegri og betri. Vera leigir
húsnæöið ásamt Lauru Valentino útlitshönnuði blaðsins og
Verksmiöjunni - hönnun og ráðgjöf, sem er nýtt fyrirtæki í eigu
þriggja grafískra hönnuða og tveggja viðskiptafræðinga.
Bríet félag ungra feminista heldur fundi sína í húsnæðinu.
Símanúmer Veru er: 552 6310.