Vera - 01.02.2002, Síða 19
Af spjallrás MR í desember 2001.
Það sem karlmenn hafa umfram kven-
fólk er því fyrst og fremst þetta tvennt:
a) líkamlegur gjörvileiki, en kvenfólk er
frá náttúrunnar hendi verr falliö til lík-
amlegrar vinnu. b) félagslegt innræti,
en piltum er innrætt mun meiri áræðni
og sjálfstæði en kvenfólki......
.... eins og staðan er I dag er almennur
tekjumunur karlmanna og kvenmanna,
að ég best fæ séð, ekki að ástæðulausu:
karlmenn eru einfaldlega verðmætari
starfskraftar.
.... Annars hafa þær stúlkur sem ég
þekki sem klófestar hafa verið af Bríeti
breyst til muna eftir það. Þær segjast
vera farnar að „hugsa sjálfstætt" en
það eina sem ég heyri er tal frá svona
Olgum sem þola ekki konur sem ganga
í brjóstahöldum. Mér finnst þetta nú i
hæsta máta óskiljanlegt þetta
femínista bull.
.... Ég er, eins og mörgum er kunnugt,
einarður talsmaður anti-feminisma.
Reynsla mín I sumar, sem starfsmaður
kjörbúðar, varð enn til að styrkja þessa
skoðun mína, og fæ ég ekki betur séð
en að t.d. launamismunur kynjanna sé
að fullu réttlætanlegur.
.... Með komandi kynslóðum verður
skrefið vonandi stigið til fulls og kon-
um veitt það sama félagslega innræti,
áræðni og dugnaður sem karlmönnum
hefur verið innrætt frá alda öðli.
.... Svo mætti líka bæta við að konur
eru náttúrulega miklu líklegri til að
taka sér launað frí frá vinnu vegna
barneigna. Núna á það víst eitthvað að
breytast og karlmenn fái líka
barneignafrí sem er algjört bull og vit-
leysa að mínu mati....
...Ég held líka að enginn þoli svona juss-
ur sem þola ekki að konur vilji líta vel
út... Ef konur vilja ganga í brjóstahöld-
urum þá er það vegna þess að aðrir láta
þær vilja það...
Úr blöðum frá áttunda áratugnum
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar ræðir jafnrétti
„...Jafnrétti er hið versta tískuorð og notað í áróðursskyni",
sagði Einar Mathiesen, bæjarfulltrúi sjálfstæðismanna í
Hafnarfirði á bæjarstjórnarfundi í Firðinum á þriðjudaginn
var.
Arni Gunnlaugsson (Félag óháðra, styður Sjálfstæðisflokk-
inn) taldi að málefnum barna væri vel sinnt og þar fyrir utan
þjónaði það engum tilgangi að konur væru að vinna utan
heimilis, nema þá þeim einum að safna sér peningum fyrir
luxus, svo sem Mæjorkaferðum.
Stefán Jónsson (ihald og forseti bæjarstjórnar) vildi kenna
dagheimilum að nokkru leyti um þá upplausn sem hann taldi
ríkja í þjóðfélaginu. „Dagheimili er tískufyrirbæri," sagði
Stefán og fullyrti að fólk sem hefur sérmenntun í störfum á
barnaheimilum vissi ekki meira um barnauppeldi en hann
sjálfur, sem hefði lifað í 60-70 ár.
Meirihlutinn taldi og að kröfur um dagheimili væru lítil-
lækkun á starfi konunnar inni á heimilunum. „Ég þekki
margar konur sem eru á móti þessu tali um jafnrétti," sagði
Einar kaupmaður Mathiesen.
-Þjóöviljinn, 8. nóvember 1974
Hvaö hafa heimspekingar sagt um eðli kvenna?
Kenning Aristótelesar um líffræðilegan
kynjamismun hefur verið skilgreind
sem „eins-kyns kenning". Aristóteles
gengur út frá einu kyni. Hið eina og
eiginlega kyn er karlkyn og hann leiðir
kvenkyn af því
•Konan er samkvæmt kenningu
Aristótelesar frávik frá hinu eina og
upprunalega karlkyni. Hann skrifar:
„Okkur ber að líta á konuna sem hún
væri vanskapnaður sem kemur þó
engu að síður upp við náttúrulegar
aðstæður." Þessi „vanskapnaður er
náttúrulegur vegna þess að náttúran
krefst hans til viöhalds mannkyns.
•Eina ástæðan fyrir tilvist konunnar er
semsé að hún er „ill nauðsyn" til við-
halds mannkyni.
• Konan, segir Aristóteles, er „ófrjór
karl". Konuna skortir eitthvað sem
karlinn hefur, karlinn er heill, konan
hálfgildingur.
Konur eru I kenningum Rousseaus og
Hegels einnig skilgreindar út frá líf-
fræði sinni, sínu náttúrulega hlutverki.
• Konur eru tilfinningastýrðari og lík-
amlega skilyrtari en karlar. Það ber að
athuga að tilfinningasemi kvenna er
talin mjög neikvæð, beinlínis vara-
söm.
• Vegna þess að konur eru tilfinninga-
verur er þeim ekki treystandi fyrir
pólitískum embættum.
Rousseau fullyrðir að I Ijósi þess að
konur eru náttúrulegri og tilfinninga-
legri en karlar séu þær gæddar hag-
nýtri skynsemi sem nýtist þeim í búsýs-
lu, barnauppeldi, og til að halda karlin-
um ánægðum.
• Konan á bæði að vera dygöug hús-
freyja og tælandi eiginkona.
• Konan getur verið fyndin og
skemmtileg, klók og jafnvel slóttug.
• Ef konan fær að nota skynsemi sína
verður hún öðrum byrði og hún gerir
sig að karli.
Hegel lýsir hinum „náttúrulega" mis-
mun kynjanna með eftirfarandi hætti:
„Hið raunverulega, eiginlega líf karlsins
er á hinum opinbera vettvangi ríkisins,
í vísindum og þess háttar , og enn
fremur í glímu við og vinnu með um-
hverfi sitt og við sjálfan sig." „Hið eig-
inlega hlutverk konunnar er aftur á
móti innan fjölskyldunnar." Hegel bæt-
ir síðan við að konur geti að vísu
menntast, en þær eru ekki hæfar til að
stunda „æðri vísindi, heimspeki og
ákveðnar gerðir Iistsköpunar" sem
krefjast færni til að hugsa samkvæmt
almennum lögmálum.
Hrafnhildur Georgsdóttir vann upp úr
Kvennamegin eftir Sigriöi Þorgeirsdóttur.