Vera - 01.02.2002, Side 23
geri það sem ég vil
Andrea Róbertsdóttir sjónvarpskona
eministi í mínum huga er jafnrétti kynjanna, aö vera jafnrétt-
issinni. Manneskjan kemur fyrst og kynið svo. Mér leiðast öfgar og
fólk sem er duglegt við að dæma, en það finnst mér oft einkenna
feminista. Eg reyni að vera opin fyrir sem flestum sjónarmiðum sem
ég get síðar pikkað út. Akveð sjálf hvað ég vil gera, hvenær og
hvernig. Ákveð sjálf hvað er vont eða gott, rétt eða rangt. Ég reyni
að fylgja hjartanu og vera sönn sjálfri mér og í seinni tíð reynt að
lifa með minni áreynslu og rembingi. Samt held ég áfram að vera
háð árangri, og velgengni er lífsstíll fyrir mér. Allt þetta hef ég get-
að gert af því að ég er kona, af því að ég er íslensk. Ég má tala, kjósa
og klæða mig eins og ég vil?.. nema þá kannski fyrir feministum. Ég
birtist á skjánum nokkrum sinnum í viku í wonderbra og nælon-
sokkabuxum og ég klæði mig í það af því aö ég vil það. Ég er ekki að
gera það fyrir einhvern annan, umhverfið eða hitt kynið. Ég klæðist
sokkaböndum, mála mig og fer í plokkun og litun af því að mig
langar til þess. Er ég með því að viðhalda staðlaðri kvenímynd? Ég
bara get ekki borið ábyrgð á öðrum en mér sjálfri. Er ég gallsúr af
áhrifum og kröfum frá umhverfinu eða??? Nei, ég held að það sé
vegna þess að ég vil lifa án takmarkana en samt er ég alltaf að leita
eftir viðurkenningu annara, viðurkenningu frá umhverfinu.
Skrítið. Þannig að ég er bara alveg púsluð yfir þessu öllu
saman.
Ég er spurö: „Ertu feministi?" og því á ég að svara á 1/2
A4 síðu. Höfum það rúma 1/2 A4 síðu. Og því held ég áfram.
Feministar hafa oft verið að gagnrýna hvernig konur klæða
sig, hvernig þær haga sér en samt eru þær allar eins og
klipptar út úr nýjasta fréttabréfi feminista því að þær
fylgja ákveðnum tískustraumum. En skítt meö feminista-
töflurnar og feminista-klippinguna - ég er þeim afar
þakklát fyrir að reyna að bæta stöðu kvenna. Að skera
skapabarma af og allur sá viðbjóður sem konur þurfa
að þola. Hvað er að? Ég segi bara: ef þú vilt
fylgja nýjustu feminista-tískunni gerðu það
þá kona en ef þú vilt spranga um í bikiníi á
sviðinu á Broadway, gerðu það þá líka.
Gerðu allt sem þú vilt og aðeins meira. Ég
er ekki aö meina að þú eigir að brosa og
kyssa tengdó fyrir rykmoppuna sem þú
fékkst í jólagjöf. Troddu skaftinu frekar
þangað sem sólin aldrei skín. Nema að
þú hafir beðið um rykmoppu í jólagjöf.
Eða er þaö kannski bannað? Ég hef oft
ætlað að fara á fund hjá Bríeti, félagi
ungra feminista, til að leita svara og
ætti bara að merkja það inn á fíló-
faxið hér og nú svo aö ég gleymi því
ekki enn einu sinni. Ég er nefnilega
Frk. Fílófax því að ég þarf að gera
svo margt, til aö ná lengra, til að
reyna að fá sömu laun og maður-
inn á næsta borði, til að sanna
mig?.. af þvi að ég er kona. Samt
eru konur menn. Karlmaöurinn
er ekki óvinurinn en þetta vil ég
segja að lokum:
Go girl??? girl power!
Ég klæðist sokkaböndum,
mála mig og fer í plokkun og
litun af því að mig langar til
þess. Er ég með því að við-
halda staðlaðri kvenímynd?
Ég bara get ekki borið ábyrgð
á öðrum en mér sjálfri.