Vera - 01.02.2002, Page 23

Vera - 01.02.2002, Page 23
geri það sem ég vil Andrea Róbertsdóttir sjónvarpskona eministi í mínum huga er jafnrétti kynjanna, aö vera jafnrétt- issinni. Manneskjan kemur fyrst og kynið svo. Mér leiðast öfgar og fólk sem er duglegt við að dæma, en það finnst mér oft einkenna feminista. Eg reyni að vera opin fyrir sem flestum sjónarmiðum sem ég get síðar pikkað út. Akveð sjálf hvað ég vil gera, hvenær og hvernig. Ákveð sjálf hvað er vont eða gott, rétt eða rangt. Ég reyni að fylgja hjartanu og vera sönn sjálfri mér og í seinni tíð reynt að lifa með minni áreynslu og rembingi. Samt held ég áfram að vera háð árangri, og velgengni er lífsstíll fyrir mér. Allt þetta hef ég get- að gert af því að ég er kona, af því að ég er íslensk. Ég má tala, kjósa og klæða mig eins og ég vil?.. nema þá kannski fyrir feministum. Ég birtist á skjánum nokkrum sinnum í viku í wonderbra og nælon- sokkabuxum og ég klæði mig í það af því aö ég vil það. Ég er ekki að gera það fyrir einhvern annan, umhverfið eða hitt kynið. Ég klæðist sokkaböndum, mála mig og fer í plokkun og litun af því að mig langar til þess. Er ég með því að viðhalda staðlaðri kvenímynd? Ég bara get ekki borið ábyrgð á öðrum en mér sjálfri. Er ég gallsúr af áhrifum og kröfum frá umhverfinu eða??? Nei, ég held að það sé vegna þess að ég vil lifa án takmarkana en samt er ég alltaf að leita eftir viðurkenningu annara, viðurkenningu frá umhverfinu. Skrítið. Þannig að ég er bara alveg púsluð yfir þessu öllu saman. Ég er spurö: „Ertu feministi?" og því á ég að svara á 1/2 A4 síðu. Höfum það rúma 1/2 A4 síðu. Og því held ég áfram. Feministar hafa oft verið að gagnrýna hvernig konur klæða sig, hvernig þær haga sér en samt eru þær allar eins og klipptar út úr nýjasta fréttabréfi feminista því að þær fylgja ákveðnum tískustraumum. En skítt meö feminista- töflurnar og feminista-klippinguna - ég er þeim afar þakklát fyrir að reyna að bæta stöðu kvenna. Að skera skapabarma af og allur sá viðbjóður sem konur þurfa að þola. Hvað er að? Ég segi bara: ef þú vilt fylgja nýjustu feminista-tískunni gerðu það þá kona en ef þú vilt spranga um í bikiníi á sviðinu á Broadway, gerðu það þá líka. Gerðu allt sem þú vilt og aðeins meira. Ég er ekki aö meina að þú eigir að brosa og kyssa tengdó fyrir rykmoppuna sem þú fékkst í jólagjöf. Troddu skaftinu frekar þangað sem sólin aldrei skín. Nema að þú hafir beðið um rykmoppu í jólagjöf. Eða er þaö kannski bannað? Ég hef oft ætlað að fara á fund hjá Bríeti, félagi ungra feminista, til að leita svara og ætti bara að merkja það inn á fíló- faxið hér og nú svo aö ég gleymi því ekki enn einu sinni. Ég er nefnilega Frk. Fílófax því að ég þarf að gera svo margt, til aö ná lengra, til að reyna að fá sömu laun og maður- inn á næsta borði, til að sanna mig?.. af þvi að ég er kona. Samt eru konur menn. Karlmaöurinn er ekki óvinurinn en þetta vil ég segja að lokum: Go girl??? girl power! Ég klæðist sokkaböndum, mála mig og fer í plokkun og litun af því að mig langar til þess. Er ég með því að við- halda staðlaðri kvenímynd? Ég bara get ekki borið ábyrgð á öðrum en mér sjálfri.

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.