Vera - 01.02.2002, Page 27

Vera - 01.02.2002, Page 27
Hversu miklu máli skiptir að vera kona? Eruð þið uppteknar afþvi að skilgreina ykk- ur sem slikar? Hildur Fjóla: Ég held að það sé fyrst og fremst samfélagiö sem skilgreinir konuna sem slíka og einstaklingurinn þarf svo að gangast upp í því hlutverki sem henni er út- hlutað þvi annars er hún hreinlega ekki tal- in vera kona. Þetta er ákveðin menningar- leg hegðun sem ætlast er til af manni til þess að gangast upp í fyrirbærinu kona. Kannski frekar síbreytileg og fljótandi skil- greining í gegnum tímann. Díana Dúa: Ég hef eiginlega aldrei pælt i þessu... Elin Anna: Ég hef heldur aldrei pælt í þessu... ekkert þannig... Ásthildur Ég er sammála Hildi Fjólu. Teljið þið ykkur hafa ákveðnum skyldum að gegna sem konur á heimilinu og i þjóðfél- aginu? Elín Anna: Mér finnst þetta skiptast jafnt bara. Díana Dúa: Tímarnir hafa breyst mjög mikið. Nú fara karlar i fæðingarorlof. Press- an er ekki eingöngu á konur að vera heima að sjá um börnin og þvo þvott á meðan karlmaðurinn er úti að vinna. Ásthildur: Ég finn fyrir pressu með það að eignast barn. I rauninni er litið á það sem sjálfgefinn hlut, eins og maður hafi ekki val um það að eignast barn einhverntíma. Hildur Fjóla: Beint eða óbeint er gert ráð fyrir því að það sé eðlilegur þáttur í lífi allra. Ef kona er ein veröur hún aö ná sér i karl og eftir það að eignast barn. Díana Dúa: Já, ég held að konur eigi ofsalega erfitt með að vera einar. Þær eru alltaf stressaðar á því aö pipra, þær finna lifsklukkuna tikka og finnst þær verða að ná sér í karl til þess að fara ekki alveg á taug- um af því að vera einstæðar lengi. Pressan kemur líka frá utanaðkomandi um að þaö sé hreinlega eitthvað aö ef konur eru einar. Er mikilvœgt að lita vel út? Upplifið þiö pressu i þá átt? Hildur Fjóla: í raun mætti vera meiri fjölbreytileiki á markaðnum hvað varðar útlit. Díana Dúa: Það er bara til ein stöðluð ímynd sem konum finnst þær þurfa að upp- fylla. Ég held samt að þaö sé bara eitthvað sem er fast í okkur sjálfum. Umhverfiö og karlmenn hafa ekkert endilega þessar hug- myndir, við erum sjálfar mataöar af fjöl- miölum og fyrirsætum og öðru. Við gerum okkur kannski ekki grein fyrir því að þetta er ekkert svona. Karlmenn og samfélagið krefjast þess ekki að við séum akkúrat svona. Eöa hvað finnst ykkur? Hildur Fjóla: Já, en ef markaðurinn krefst þess... nú er alltaf talað um að mark- aðurinn ráði og við eigum að leyfa mark- aðnum aö ráöa. Á hann ekki að fá að ráða þessu eins og öðru? Er raunhœft að reyna að taka ekki þátt iþvi sem okkur er kennt að sé œskileg hegðun og útlit? Hildur Fjóla: Það er hægt að falla ekki inní þessar ímyndir en það er erfitt án þess að fá stuöning einhversstaðar frá. Allir þurfa stuðning til þess að skapa sina sjálfs- mynd, það gerir enginn einn. Annað hvort verðum við að tilheyra hópi sem leggur áherslu á einstaklinginn en ekki þessa markaðsimynd um konur, eða vera bara nógu sterk til að standa ein og lifa eigin lifi á eigin forsendum án þess að taka inn ut- anaðkomandi áreiti. Ásthildur: Ég hef fundið þessa pressu um að helst eigi ég ekki að fara út að skemmta mér án þess aö vera máluð og að vera helst alltaf fín og sæt. Díana Dúa: Maður verður að vera visst þung og hafa ákveðið útlit til þess að vera eitthvaö og við erum allar örugglega alltaf að hugsa um þetta. Við förum ábyggilega ekkert út á lífið fyrr en við erum búnar að vera í marga klukkutima fyrir framan speg- ilinn. Elín Anna: ...að reyna að fela bólur og svoleiðis... (hlátur) Ásthildur: Persónulega reyni ég að taka ekki þátt í því. Hildur Fjóla: Ég er reyndar sammála Ásthildi, en ég upplifi mig hafa ákveðið stuöningsnet í mínum vinahópi þar sem ég þarf til dæmis ekki að mála mig eða klæða mig á ákveðinn hátt til þess að fara út. Aft- ur á móti er það mjög meðvitað val, það er aldrei þannig aö ég hugsi ekki um það. Ásthildus Maður ákveður bara að hafa Ég upplifi mig hafa ákveðið stuðningsnet í mínum vinahópi þar sem ég þarf til dæmis ekki að mála mig eða klæða mig á ákveðinn hátt til þess að fara út. Aftur á móti er það mjög með- vitað val, það er aldrei þannig að ég hugsi ekki um það. -Hildur Fjóla þetta val og verður að vera nægilega sterk til að notfæra sér það. Hildur Fjóla: Það er einmitt lykilatriði að hafa valið, að hafa frelsið. Það er það sem ætti aö þýða að vera kona í dag en þýðir sennilega ekki. Díana Dúa: En eru karlmenn ekki líka bundnir þessum ímyndum? Elín Anna: Þegar ég fer út á djammið með kærastanum mínum er ég ekkert leng- ur fyrir framan spegilinn en hann. Díana Dúa: Við erum kannski að fatta í dag hvað við erum lík aö mörgu leyti. Þeir eru farnir að taka þátt í heimilisstörfunum og við erum farnar að vinna jafn mikið. Viö sjáum oftar og oftar konur i áhrifamiklum stöðum og mér finnst konum ekkert vera mismunaö þar. Karlmenn taka líka alveg jafn mikinn þátt i þessu með útlitið og hafa sínar ímyndir frá samfélaginu. Á kvennabaráttan rétt á sér i dag? Díana Dúa: Alveg eins og karlar eiga rétt á þvi aö vera með einhverja baráttu. Elín Anna: Já. Díana Dúa: Ég held að við konur séum stundum að gera okkur að einhverjum fórnárlömbum. Hildur Fjóla: Ég held reyndar að þessi frábæra staða sem þú ert að lýsa núna, að karlmenn séu komnir meira inná heimilin, þjáist vegna ímynda i samfélaginu... það er náttúrulega kvennabaráttan sem hefur komið okkur hingað. Díana Dúa: Vissulega, það er alveg satt. Við höfum auðvitað barist með kjafti og klóm og náð okkar árangri meö því. Er þá komið nóg af baráttu? Hildur Fjóla: Ef við horfum á launatölur sem dæmi, sjáum við aö þetta er auðvitað ekki allt komið, nei. (hlátur) Þaö er þetta sem femínistar kalla hið falda misrétti. Það 27

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.