Vera - 01.02.2002, Page 68
o
&
c
■ BBHB
XZL
»■ ni--n-g-ni:«
rxvmim
Alþingisvaktin
Wm
Þingkonan aö þessu sinni er framsóknarkonan Jónína Bjartmarz.
Jónína hefur veriö skeleggur formaöur landsamtakanna Heimili
og skóli sem hafa unnið athyglisvert brautryðjendastarf í skóla-
og forvarnarstarfi. Hún var einnig meðal stofnenda FKA - Félags
kvenna í atvinnurekstri og fyrsti formaður þess. Jónína hefur um
árabil rekið lögfræðiskrifstofu ásamt eiginmanni sínum Pétri Þór
Sigurðssyni og situr nú sitt fyrsta kjörtímabil á þingi. Jónína er
formaður heilbrigðisnefndar þingsins, varaformaður allsherjar-
nefndar og á sæti í þremur öðrum þingnefndum.
Laus viö pirringinn
Við spurðum Jónínu hvort eitthvað einkenndi
stöðu stjórnarþingmanns öðru fremur. Jónína
sagðist auðvitaö ekki hafa neinn samanburð. „En
það má nefna það að stjórnarþingmenn ein-
göngu gegna formennsku í nefndum þingsins
og auðvitaö setur það svip sinn á störf okkar.
Það einkennir aftur á móti stjórnarandstööuna
að gagnrýna og benda á vankanta á málum
ráðherra og stjórnarþingmanna, og valdaleysið
veldur að sjálfsögöu oft pirringi hjá stjórnarand-
stöðunni og þann pirring er auðvitaö gott að
vera laus við."
Ráöherralaus draumur
„Ráðherraembætti dreymir mig hvorki í vöku
eöa svefni en ráðuneytin höfða mis mikið til
mín. Eg get nefnt að sjávarútvegs- og umhverf-
isráöuneyti yrðu aftarlega á óskalistanum en
þaö liggur eingöngu í því að þá málaflokka þekki
ég minna en aðra. Að öðru leyti geri ég ekki upp
á milli ráðuneyta," segir Jónína.
Ævintýri og konumynd
„Síöasta kvikmynd sem ég sá var Hringadróttins-
saga. Fjölskyldan fór saman og naut myndarinn-
ar - það kom í Ijós að eldri sonur okkar hafði les-
ið allar bækurnar svo nú bíðum við bara spennt
eftir hinum tveimur myndunum. A dagskránni er
að sjá evrópsku verðlaunamyndina Amelie,"
sagði Jónína.
Næringin á náttboröinu
„Mér finnast næstum allar bækur spennandi. Og
á náttboröinu mínu núna eru nokkrar, m.a. bók
Matthíasar Johannessen, Hann nærist á góðum
minningum og Guð á hvíta tjaldinu sem geymir
áhugaveröa umfjöllun þriggja guðfræðinga um
trúarstef og túarleg tákn í kvikmyndum. Ekki má
gleyma Eyðimerkurblóminu og Þriðja leiðin, bók
Anthony Giddens, er einnig innan seilingar,"
sagði Jónína og bætti við að hún heföi sjaldnast
þann tíma sem hún vildi til að lesa.
Stjórnmál og stefnur í framtíðinni
Jónína vill sjá jafnari hlut kvenna og karla í
stjórnmálum - ekki bara ungar konur heldur
konur á öllum aldri með þroska, reynslu og víð-
sýni úr skóla lífsins. Hvaö stefnu Framsóknar-
flokksins varöar segir Jónína: „Flokkurinn er
öðrum góð fyrirmynd um lýðræðislega umræðu
sem sjávarútvegs- og Evrópunefndin eru góð
dæmi um, svo og sú umræða sem viðsýnn for-
maður flokksins og utanríkisráðherra er í farar-
broddi fyrir um EES samninginn og Evrópusam-
bandiö. Öfgalaus flokkur sem hafnar jafnt öfg-
um einkavæðingar og fortakslausri félagslegri
forsjá og stendur vörö um jöfnuð í samfélaginu
á síst minna eríndi við höfuðborgarbúa en fólk á
landsbyggðinni. Uppbygging atvinnulífsins og
aukin erlend fjárfesting, sem framsóknarmenn
hafa öörum fremur beitt sér fyrir, er forsenda
þess að okkur takist að efla velferöarkerfið."
Upplýstar á vefnum!
Valgeröur
vinnusöm og vandvirk
Ðj :H>liMtl4aVtl««rterSvwm<Mtur RB
Valgerður vandar sig, er það fyrsta sem manni dettur í hug þegar komið er inn á vefinn
hennar Valgeröar. Hún kemur sér beint að efninu og á forsíðu má lesa stuttar athuga-
semdir og skoðanir Valgerðar á mönnum og málefnum ásamt nýjustu fréttum úr starfi
hennar. Það sem vekur sérstaka athygli er dagbókin, þar fá gestir innsýn í hefðbundinn
vinnudag Valgerðar; kíkjum i dagbókina:
Þriðjudagur 8. janúar 2002
Rikisstjórnarfundur kl. 09.30 aö venju. Ég lagöi fram byggðaáætlun og minnisblað um
Steinullarverksmiðju.
Hádegisrabbfundur með forstjórum undirstofnana ráöuneytisins. Nokkrir aðilar áttu
bókuð vitöl þennan dag og málefnin voru af ýmsum toga.
Kl. 16.00 flaug ég til Akureyrar vegna opins fundar sem ég hafði boðað til í Gamla
skólanum í Grenivík. Fundurinn var vel sóttur og skemmtilegur. Alltaf gaman að hitta
sveitungana.
Miövikudagur 9. janúar
Ég hóf daginn með fyrirtækjaheimsóknum á Akureyri og leit m.a. við á tannlækna-
stofu Egils Jónssonar. Hann er að vinna að mjög áhugaverðum hugmyndum í sambandi
viö tannlækningar. Síðan hitti ég Eirík Jóhannsson kaupfélagsstjóra.
Eftir hádegið höföu nokkrir aöilar bókað viðtöl hjá mér á KEA. Ráðuneytisstjórinn,
Þorgeir Örlygsson sat fundina með mér.
Um kvöldiö var fundur í Þelamerkurskóla. Þórarinn E. Sveinsson, formaður kjör-
dæmissambandsins fór með mér á fundinn.
Þar höfum við það - tveir dagar úr lífi ráðherrans. Annars er andi vefsins vinnuserm
og dugnaður. Fín vefsíöa hjá Valgerði, aö undanskildum tengingum á aöra vefi sem eru
heldur fátæklegar og ófrumlegar. Slóðin er www.valgerdur.is