Vera - 01.02.2002, Síða 68

Vera - 01.02.2002, Síða 68
o & c ■ BBHB XZL »■ ni--n-g-ni:« rxvmim Alþingisvaktin Wm Þingkonan aö þessu sinni er framsóknarkonan Jónína Bjartmarz. Jónína hefur veriö skeleggur formaöur landsamtakanna Heimili og skóli sem hafa unnið athyglisvert brautryðjendastarf í skóla- og forvarnarstarfi. Hún var einnig meðal stofnenda FKA - Félags kvenna í atvinnurekstri og fyrsti formaður þess. Jónína hefur um árabil rekið lögfræðiskrifstofu ásamt eiginmanni sínum Pétri Þór Sigurðssyni og situr nú sitt fyrsta kjörtímabil á þingi. Jónína er formaður heilbrigðisnefndar þingsins, varaformaður allsherjar- nefndar og á sæti í þremur öðrum þingnefndum. Laus viö pirringinn Við spurðum Jónínu hvort eitthvað einkenndi stöðu stjórnarþingmanns öðru fremur. Jónína sagðist auðvitaö ekki hafa neinn samanburð. „En það má nefna það að stjórnarþingmenn ein- göngu gegna formennsku í nefndum þingsins og auðvitaö setur það svip sinn á störf okkar. Það einkennir aftur á móti stjórnarandstööuna að gagnrýna og benda á vankanta á málum ráðherra og stjórnarþingmanna, og valdaleysið veldur að sjálfsögöu oft pirringi hjá stjórnarand- stöðunni og þann pirring er auðvitaö gott að vera laus við." Ráöherralaus draumur „Ráðherraembætti dreymir mig hvorki í vöku eöa svefni en ráðuneytin höfða mis mikið til mín. Eg get nefnt að sjávarútvegs- og umhverf- isráöuneyti yrðu aftarlega á óskalistanum en þaö liggur eingöngu í því að þá málaflokka þekki ég minna en aðra. Að öðru leyti geri ég ekki upp á milli ráðuneyta," segir Jónína. Ævintýri og konumynd „Síöasta kvikmynd sem ég sá var Hringadróttins- saga. Fjölskyldan fór saman og naut myndarinn- ar - það kom í Ijós að eldri sonur okkar hafði les- ið allar bækurnar svo nú bíðum við bara spennt eftir hinum tveimur myndunum. A dagskránni er að sjá evrópsku verðlaunamyndina Amelie," sagði Jónína. Næringin á náttboröinu „Mér finnast næstum allar bækur spennandi. Og á náttboröinu mínu núna eru nokkrar, m.a. bók Matthíasar Johannessen, Hann nærist á góðum minningum og Guð á hvíta tjaldinu sem geymir áhugaveröa umfjöllun þriggja guðfræðinga um trúarstef og túarleg tákn í kvikmyndum. Ekki má gleyma Eyðimerkurblóminu og Þriðja leiðin, bók Anthony Giddens, er einnig innan seilingar," sagði Jónína og bætti við að hún heföi sjaldnast þann tíma sem hún vildi til að lesa. Stjórnmál og stefnur í framtíðinni Jónína vill sjá jafnari hlut kvenna og karla í stjórnmálum - ekki bara ungar konur heldur konur á öllum aldri með þroska, reynslu og víð- sýni úr skóla lífsins. Hvaö stefnu Framsóknar- flokksins varöar segir Jónína: „Flokkurinn er öðrum góð fyrirmynd um lýðræðislega umræðu sem sjávarútvegs- og Evrópunefndin eru góð dæmi um, svo og sú umræða sem viðsýnn for- maður flokksins og utanríkisráðherra er í farar- broddi fyrir um EES samninginn og Evrópusam- bandiö. Öfgalaus flokkur sem hafnar jafnt öfg- um einkavæðingar og fortakslausri félagslegri forsjá og stendur vörö um jöfnuð í samfélaginu á síst minna eríndi við höfuðborgarbúa en fólk á landsbyggðinni. Uppbygging atvinnulífsins og aukin erlend fjárfesting, sem framsóknarmenn hafa öörum fremur beitt sér fyrir, er forsenda þess að okkur takist að efla velferöarkerfið." Upplýstar á vefnum! Valgeröur vinnusöm og vandvirk Ðj :H>liMtl4aVtl««rterSvwm<Mtur RB Valgerður vandar sig, er það fyrsta sem manni dettur í hug þegar komið er inn á vefinn hennar Valgeröar. Hún kemur sér beint að efninu og á forsíðu má lesa stuttar athuga- semdir og skoðanir Valgerðar á mönnum og málefnum ásamt nýjustu fréttum úr starfi hennar. Það sem vekur sérstaka athygli er dagbókin, þar fá gestir innsýn í hefðbundinn vinnudag Valgerðar; kíkjum i dagbókina: Þriðjudagur 8. janúar 2002 Rikisstjórnarfundur kl. 09.30 aö venju. Ég lagöi fram byggðaáætlun og minnisblað um Steinullarverksmiðju. Hádegisrabbfundur með forstjórum undirstofnana ráöuneytisins. Nokkrir aðilar áttu bókuð vitöl þennan dag og málefnin voru af ýmsum toga. Kl. 16.00 flaug ég til Akureyrar vegna opins fundar sem ég hafði boðað til í Gamla skólanum í Grenivík. Fundurinn var vel sóttur og skemmtilegur. Alltaf gaman að hitta sveitungana. Miövikudagur 9. janúar Ég hóf daginn með fyrirtækjaheimsóknum á Akureyri og leit m.a. við á tannlækna- stofu Egils Jónssonar. Hann er að vinna að mjög áhugaverðum hugmyndum í sambandi viö tannlækningar. Síðan hitti ég Eirík Jóhannsson kaupfélagsstjóra. Eftir hádegið höföu nokkrir aöilar bókað viðtöl hjá mér á KEA. Ráðuneytisstjórinn, Þorgeir Örlygsson sat fundina með mér. Um kvöldiö var fundur í Þelamerkurskóla. Þórarinn E. Sveinsson, formaður kjör- dæmissambandsins fór með mér á fundinn. Þar höfum við það - tveir dagar úr lífi ráðherrans. Annars er andi vefsins vinnuserm og dugnaður. Fín vefsíöa hjá Valgerði, aö undanskildum tengingum á aöra vefi sem eru heldur fátæklegar og ófrumlegar. Slóðin er www.valgerdur.is

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.