Vera - 01.02.2002, Page 69
UMSJÓN: MARTHA ÁRNADÓTTIR
Konur spyrja konur
Það vakti athygli Alþingisvaktarinnar aö svo til allar fyrirspurnir til kvenráöherranna þriggja,
þeirra Sivjar, Sólveigar og Valgeröar, voru bornar fram af konum. Þær stöllur hafa svarað 28
fyrirspurnum þegar þetta er skrifað í lok janúar. Skiptingin er þannig að Siv hefur svaraö 7 fyr-
irspurnum, Sólveig 6 og Valgeröur 15. Þegar litiö er til fyrirspyrjenda kemur í Ijós aö Margrét
Frímannsdóttir hefur boriö fram flestar fyrirspurnir eöa 8, þær Jóhanna Sigurðardóttir, Svan-
fríður Jónasdóttir, Guðrún Ögmundsdóttir og Kolbrún Halldórsdóttir eiga 3 fyrirspurnir hver.
Þórunn Sveinbjarnardóttir og Þuríður Backman hafa lagt fram tvær hvor.
En - um hvað spyrja þær?
■Kfll * um jafnréttisáætlun, stöðuveitingar og skipan
* um reglugerðir frá umhverfisráðuneyti
* um náttúruverndaráætlun
* um akstur utan vega
* um framkvæmdir sveitarfélaga í fráveitumálum
* um rannsóknarsetur á Kvískerjuni
* um samning um líffræðilega fjölbreytni
Þær spyrja Sólveigu...
* um jafnréttisáætlun, stöðuveitningar og skipan
í ráö og nefndir
* um nálgunarbann
* um ákvörun refsinga viö afbrotum
* um nauðgunarmál
* um rannsókn óupplýstra mannshvarfa
* um rannsókn á dreifingu barnakláms á netinu
Hvað er þingsályktunartillaga?
Þar sem Alþingisvaktin skrifar mikið um þingsályktunartillögur þótti okkur upplagt að svara
spurningunni hvaö er þingsályktunartillaga?
Þingsályktunartillaga er stefna eða ákvöröun Alþingis án þess aö vera lög. Oft fela þings-
ályktunartillögur í sér áskorun á ríkisstjórnina að sjá um framkvæmd verkefnis, undirbúa lög-
gjöf eöa rannsaka tiltekið mál. Þingsályktunartillögur eru ræddar við tvær umræður i þinginu
og í flestum tilfellum vísað til nefndar á milli umræðna. Þær eru algengasta form þingmanna
til að koma stefnumálum sínum á framfæri.
Þingmálin
Aðgengi fyrir alla
Fyrir þinginu liggur tillaga um aö
skipaöur verði starfshópur með full-
trúum sjö ráöuneyta og fulltrúum
frá hagsmunasamtökum fatlaöra.
Verkefni hópsins yröi að semja
framkvæmdaáætlun sem hefur þaö
að markmiði aö tryggja aögengi fyr-
ir alla með hliösjón af meginreglum
Sameinuðu þjóðanna um þátttöku
fatlaðra til jafns viö aöra. Jafnframt
er starfshópnum ætlaö aö gera
kostnaðaráætlun um verkefniö. Til-
lagan gerir ráð fyrir aö fulltrúi fé-
lagsmálaráðuneytisins veröi for-
maður starfshópsins. Margrét Frí-
mannsdóttir þingkona Samfylking-
arinnar er fyrsti flutningsmaður til-
lögunnar. Tillagan bíöur umræöu.
Móttaka fyrir ungt fólk
Guörún Ögmundsdóttir fer fyrir hópi þingmanna
sem lagt hefur fram þingsályktunartillögu um að
Alþingi feli heilbrigðisráðherra að hefja viöræð-
ur við heilsugæsluna í Reykjavík um opnun ung-
lingamóttöku við eina af stöðvum hennar. í
greinargerð með tillögunni segir að afar mikil-
vægt sé aö bregöast við þörfinni fyrir sérstaka
móttöku fyrir ungt fólk þar sem þaö getur rætt
sín mál viö fagaðila á eigin forsendum. Ahættu-
hegðun unglinga, t.d. reykingar og vímuefna-
neysla, er málaflokkur sem þarfnast umfjöllunar
og forvarna og á unglingamóttakan að geta
sinnt hluta þessa málaflokks. Talið er að ungt
fólk muni leita til slíkrar móttöku vegna ofbeld-
is, sifjaspells, nauögunar, félagslegra vandamála,
samskiptavanda á heimilum eöa í skóla og vegna
húðvandamála, geðheilsu, kvíöa, þunglyndis eða
átraskana, svo eitthvaö sé nefnt.
69