Vera - 01.02.2002, Qupperneq 69

Vera - 01.02.2002, Qupperneq 69
UMSJÓN: MARTHA ÁRNADÓTTIR Konur spyrja konur Það vakti athygli Alþingisvaktarinnar aö svo til allar fyrirspurnir til kvenráöherranna þriggja, þeirra Sivjar, Sólveigar og Valgeröar, voru bornar fram af konum. Þær stöllur hafa svarað 28 fyrirspurnum þegar þetta er skrifað í lok janúar. Skiptingin er þannig að Siv hefur svaraö 7 fyr- irspurnum, Sólveig 6 og Valgeröur 15. Þegar litiö er til fyrirspyrjenda kemur í Ijós aö Margrét Frímannsdóttir hefur boriö fram flestar fyrirspurnir eöa 8, þær Jóhanna Sigurðardóttir, Svan- fríður Jónasdóttir, Guðrún Ögmundsdóttir og Kolbrún Halldórsdóttir eiga 3 fyrirspurnir hver. Þórunn Sveinbjarnardóttir og Þuríður Backman hafa lagt fram tvær hvor. En - um hvað spyrja þær? ■Kfll * um jafnréttisáætlun, stöðuveitingar og skipan * um reglugerðir frá umhverfisráðuneyti * um náttúruverndaráætlun * um akstur utan vega * um framkvæmdir sveitarfélaga í fráveitumálum * um rannsóknarsetur á Kvískerjuni * um samning um líffræðilega fjölbreytni Þær spyrja Sólveigu... * um jafnréttisáætlun, stöðuveitningar og skipan í ráö og nefndir * um nálgunarbann * um ákvörun refsinga viö afbrotum * um nauðgunarmál * um rannsókn óupplýstra mannshvarfa * um rannsókn á dreifingu barnakláms á netinu Hvað er þingsályktunartillaga? Þar sem Alþingisvaktin skrifar mikið um þingsályktunartillögur þótti okkur upplagt að svara spurningunni hvaö er þingsályktunartillaga? Þingsályktunartillaga er stefna eða ákvöröun Alþingis án þess aö vera lög. Oft fela þings- ályktunartillögur í sér áskorun á ríkisstjórnina að sjá um framkvæmd verkefnis, undirbúa lög- gjöf eöa rannsaka tiltekið mál. Þingsályktunartillögur eru ræddar við tvær umræður i þinginu og í flestum tilfellum vísað til nefndar á milli umræðna. Þær eru algengasta form þingmanna til að koma stefnumálum sínum á framfæri. Þingmálin Aðgengi fyrir alla Fyrir þinginu liggur tillaga um aö skipaöur verði starfshópur með full- trúum sjö ráöuneyta og fulltrúum frá hagsmunasamtökum fatlaöra. Verkefni hópsins yröi að semja framkvæmdaáætlun sem hefur þaö að markmiði aö tryggja aögengi fyr- ir alla með hliösjón af meginreglum Sameinuðu þjóðanna um þátttöku fatlaðra til jafns viö aöra. Jafnframt er starfshópnum ætlaö aö gera kostnaðaráætlun um verkefniö. Til- lagan gerir ráð fyrir aö fulltrúi fé- lagsmálaráðuneytisins veröi for- maður starfshópsins. Margrét Frí- mannsdóttir þingkona Samfylking- arinnar er fyrsti flutningsmaður til- lögunnar. Tillagan bíöur umræöu. Móttaka fyrir ungt fólk Guörún Ögmundsdóttir fer fyrir hópi þingmanna sem lagt hefur fram þingsályktunartillögu um að Alþingi feli heilbrigðisráðherra að hefja viöræð- ur við heilsugæsluna í Reykjavík um opnun ung- lingamóttöku við eina af stöðvum hennar. í greinargerð með tillögunni segir að afar mikil- vægt sé aö bregöast við þörfinni fyrir sérstaka móttöku fyrir ungt fólk þar sem þaö getur rætt sín mál viö fagaðila á eigin forsendum. Ahættu- hegðun unglinga, t.d. reykingar og vímuefna- neysla, er málaflokkur sem þarfnast umfjöllunar og forvarna og á unglingamóttakan að geta sinnt hluta þessa málaflokks. Talið er að ungt fólk muni leita til slíkrar móttöku vegna ofbeld- is, sifjaspells, nauögunar, félagslegra vandamála, samskiptavanda á heimilum eöa í skóla og vegna húðvandamála, geðheilsu, kvíöa, þunglyndis eða átraskana, svo eitthvaö sé nefnt. 69
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.