Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1924, Qupperneq 24
TIL LEIBHEININGAK
Beglan til þoss að finna páska er sú, að vita, hvenær tungl er 1S
-nátta, að rímtali, i fyrsta skipti eftir 20. mars, og nefnist sá dagur
merkidagur til páska. Páskana ber upp á næsta sunnudag eflir
merkidaginn. í rimi er tunglkoma reiknuð eiiir gyllinitali (eða pökt-
um), en rétt tunglkoma getur verið 1—2 dögum fyr eða síðar. Petta
ár er tungl 13 nátta að rimtali 20. mars og 18. apríl. 20. mars er of
snemmt, svo að merkidagurinn er 18. apríl og páskar pann 20. En
rétt tunglfylling i mars er þann 21. og auk þess er jafndægri þann
20. en i rími er það ætið talið 21. Pað tungl er þvi ekki páskatungl, -.
þó að tunglfyllingin só eftir jafndægri. Hjer fylgir tabla er sýnir
merkidaga til páska
eftir gyilinitali frá 1900 Gyllinital Merkidagur Gyllinital Merkidagur
til 2199 incl. >æst á i 14. apr. 11 25. mars
eftir páskatuagli er 2 3. apr. 12 13. apr.
sumartungl, en á und- 3 23. mars 13 2. apr.
an góutungl og þá 4 11. apr. 14 22. mars
þorratungl. Næsta 5 31. mars 15 10. apr.
tungl þar á undan er 6 18. apr. 16 30. mars
talið jólatungl, enrim- 7 8. apr. 17 17. apr.
regiur leyfa ekkiann- 8 28. mars 18 7. apr.
að en að jólatungl sé 9 16. apr. 19 27. mars
á himni á þrettándan- 10 5. apr.
um. En þegar paktar
eru 24 (þ. e. tungl 24 nátta á nýársdag), þá er tunglkoma að rimtali M
7. jan. og er það aukatungl, þvi að þá eru tvö tungl til páskatungls.
í þessu almanaki eru Hundadagar samkvæmt gömlum rimreglum,
sem farið hefir verið eflir hér á landi, taldir byrja 13. júli, og ýmsar
breytlngar eru gerðar á dýrlingatalinu. Dagatali i hinum fornu mán-
uðum er sleppt, eins og i fyrra, þvi að það mnn aldrei hafa verift
stotað hér á landi, heldur talið i vikum og vikudðgum.
DÖGUN OG DAGSETUK.
Pað er kallað dðgun að morgni, en dagsetur að kveldi, þegar
sólin er ca. 18* fyrir neðan sjóndeildarhring. Um vetrarsólhvörf er
dögun i Reykjavik kl. tæplega 7 að morgni, en dagsett kl. 6 að kveldi,
eftir islenzkum meðaltima, svo að dagsbrún sést á lopti i 11 klukku-
stundir minnst. Á timabilinu frá 11. april til 2. september er dagur
aldrei af lopti.
(22)