Freyr - 01.04.2003, Side 12
Lífræn sauðfjárrækt
- leið til nýsköpunar
Inngangur
í grein minni “íslensk sauðQár-
rækt í ljósi sjálfbærrar þróunar’’
sem birtist í Frey á liðnu ári (1)
benti ég á að íslensk sauðfjárrækt
væri gott dæmi um búgrein sem
hefði orðið fómarlamb ósjálfbærr-
ar þróunar í búvöruframleiðslu.
Þetta hefur komið enn betur í ljós
með vaxandi samkeppni við verk-
smiðjubúskap, samfara óraun-
hæfri verðlagningu kjöts, svo sem
m.a. var fjallað um á Búnaðar-
þingi 2003. Sams konar þróun er
vel þekkt víða erlendis og ekki
bætir úr skák að Alþjóðavið-
skiptastofnunin (WTO) kyndir
undir samþjöppun og verksmiðju-
væðingu landbúnaðar og þar með
hrörnun hefðbundins sveitabú-
skapar, enda hefur hún óheftan
markaðsbúskap og alþjóðavæð-
ingu að leiðarljósi. Þar sem það er
hinn lífræni geiri landbúnaðar
sem er helsta mótvægið gegn
þessari þróun, og í ljósi þess að
markaður fyrir lífrænt vottaðar
vömr fer ört vaxandi, tel ég tíma-
bært að minna enn á möguleika
lífrænnar sauðfjárræktar.
Lög og reglur
Lífræn ræktun, og allur sá bú-
skapur sem byggist á henni, hvíl-
ir á alþjóðlegum grundvelli.
Grunnreglur IFOAM, Alþjóða-
samtaka lífrænna landbúnaðar-
hreyftnga, mynda grundvöllinn
og eru þær í stöðugri endurskoð-
un. Löggjöf ýmissa landa tekur
Evrópusambandshópur IFOAM að funda í Grikklandi I lok mars 2003. Þar
er m.a. fjallað um reglur um lífrænan búskap og nýlega hefur aðgerðaáætl-
un ESB um lífrænt vottuð matvæli og landbúnað verið þar til umræðu. For-
maður nefndarinnar, Francis Blake frá Bretlandi, við borðsendann undir
veggtöflunni. íslenski fulltrúinn í nefndinni er höfundur þessarar greinar.
(Ljósm. Ó.R.D.)
eftir
Ólaf Dýrmundsson,
landsráðunaut
Bí í lífrænum
búskap
mið að þeim og á liðnum áratug
tók gildi víðtæk löggjöf um líf-
ræna landbúnaðarframleiðslu í
Evrópusambandinu. Hér á landi
vom sett lög um þessi efni í árs-
lok 1994 og ítarleg reglugerð
snemma árs 1995. Þeim lögum
var breytt 2001 (2) og reglugerð-
in vék fyrir reglum Evrópusam-
bandsins 2002 (3) vegna aðildar
Islands að Evrópska efnahags-
svæðinu. Vottunarstoíha Tún ehf.,
sem starfað hefur síðan 1994, er
eini vottunaraðilinn hérlendis og
vinnur hún eftir eigin reglum sem
em einnig mjög ítarlegar og í
stöðugri endurskoðun. Þær til-
greina lágmarkskröfur til lífrænna
búskaparhátta og eru innan
ramma IFOAM og ESB regln-
anna. I raun er hér um að ræða al-
þjóðlegt gæðastýringarkerfi sem
er markaðstengt með viðurkennd-
um vörumerkingum þannig að
sem mest traust ríki á milli bænda
og neytenda. Umhverfistengingin
er mjög sterk og sérstakt tillit er
auk þess tekið til byggðamál, bú-
íjárvemdar, sanngjama viðskipta-
hátta, mannréttinda og fæðuör-
yggis. Lífrænn búskapur fellur
því sérlega vel að sjálfbærri þró-
un (1).
112 - Freyr 3/2003