Freyr

Årgang

Freyr - 01.04.2003, Side 37

Freyr - 01.04.2003, Side 37
00-202 í Sveinungsvík var notað- ur var Bjamastaðir og þar sló hann út alla hrútana og fékk í samanburðinum þar 134 í heilda- reinkunn. Mesta samkeppni fékk hann ffá Prúði 00-155 sem var með 118 í heildareinkunn fyrir hóp af ákaflega þykkvöxnum og vel gerðum lömbum. Prúður þessi er sonur Prúðs 94-834, en dóttur- sonur Svaða 94-998. I Hafrafellstungu vom yfírburð- ir Kubbs 00-106 enn skýrari en á síðasta ári en hann fékk nú 132 í heildareinkunn. Þessi hrútur gefur mjög vel gerð lömb með litla fítu. Kubbur er sonur Mola 93-986 og dóttursonur Svans 90-228, sem var feikimikil kynbótakind og ent- ist með ágætum og varð fjörgöm- ul kind. A Brekku vom feikilega miklir yfirburðir hjá Snáða 01-245 sem fékk 146 í heildareinkunn og þar af var kjötmatshlutinn 162. Lömb undan þessum hrút höfðu úrvals- gerð en um leið mjög tempraða fitusöfnun. Snáði er undan Túla 98-858 og dóttursonur Svaða 94- 998. A komandi hausti fær hann tækifæri til að færa enn frekari sönnur á ágæti sitt í mjög um- fangsmikilli afkvæmarannsókn úrvalshrútanna á svæðinu, á Bjamastöðum. Leki 00-202 í Sveinungsvík átti allstóran lambahóp á Presthólum þannig að þar sá hann um toppinn í stórri afkvæmarannsókn, með 124 í heildareinkunn. Mesta kepp- ni veitti honum Laxi 01-207, sem einnig var lánshrútur úr Svein- ungsvík, með 113 í heildarein- kunn en hann fær enn að sýna ágæti sitt á komandi hausti í rann- sókninni á Bjamastöðum. Laxi er sonur Tóta 98-346 í Leirhöfn. Eins og undanfarin haust vom mjög glæsileg lömb í afkvæma- hópum i Hjarðarási. Þar kom á toppinn, líkt og á síðasta ári, Grímur 00-509, nú með 130 í heildareinkunn. Þessi hrútur er sonur Túla 98-858 en dóttursonur Stúfs 95-294, sem á sinni tíð var einn af toppkynbótahrútum sýsl- unnar. Grímur fær á komandi hausti tækifæri til að sanna endan- lega ágæti sitt í rannsókninni á Bjamastöðum. Snjall 97-326 fékk 120 í heildareinkunn en hann hef- ur margoft áður sýnt sig sem feikilega öflugur sláturlambafaðir, en vemleg áraskipti hafa verið á hve vel hann hefur komið út úr ómsjármælingum. Snjall er sonur Mjaldurs 93-985. í Leirhöfn stóð efstur Dóri 00- 364 frá Bjarnastöðum, undan Bæti 98-554, með 116 í heilda- reinkunn. Tóti 98-346 var líkt og undanfarin haust með mikla yfir- burði í kjötmati og fékk nú 125 úr þeim þætti rannsóknar og unglið- amir ná ekki enn að veita honum neina verðuga samkeppni. A Gunnarsstöðum var líkt og á siðastliðnum árum rannsókn með fjölda hrúta þar sem toppurinn kom í hlut Nabba 01-043 sem var með 126 í heildareinkunn. Nabbi er sonur Nubbs 98-013 frá Holti sem vel hefur sannað ágæti sitt í slikum rannsóknum, en hann er undan Búti 93-982. Stauli 99-050 sem áður hefur sýnt ágæti sitt í rannsókn fékk nú 123 í heildarein- kunn. Besta heildarútkomu úr kjötmatshluta hafði Stautur 00- 057 með 138 í þeim hluta og 119 í heildareinkunn. Stautur er undan Stubbi 95-815. Öllum þessum hrútum er það sammerkt að skila vöðvaþykkum og vel gerðum lömbum með hæfilega fitusöfnun. í Sveinungsvík var fádæma glæsilegur lambahópur í af- kvæmarannsókninni en þar hefur líklega verið teflt saman sterkari hrútahópi i samanburð en víðast og Leki 00-202 hleypti þar engum fram fyrir sig, stóð efstur með 116 í heildareinkunn. í rannsókn á Syðri-Brekkum stóðu efstir tveir hrútar, Stubbur 00-052 með 122 í heildareinkunn og Ljómi 99-051 með 121 í heildareinkunn, en hann er sonur Bjarts 93-800. Á Sauðanesi var Roði 00-014 efstur líkt og á síðasta ári nú með 126 í heildareinkunn. Ur skoðun lifandi lamba fékk hann 170 í ein- kunn, en sláturlömbin undan hon- Freyr 3/2003 - 37 |

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.