Freyr

Volume

Freyr - 01.04.2003, Page 38

Freyr - 01.04.2003, Page 38
r~-------r Viðir 97-887 á Svínafelli. (Ljósm. Guðmundur Jóhannesson). um fengu fremur óhagstætt fitu- mat. A það skal minnt að Roði er tvílembingur á móti Leka 00-202 úr Sveinungsvík. Búri 01-010 skilaði hins vegar fítulitlum slát- urlömbum og fékk 154 í kjötmats- hluta og 118 í heildareinkunn. Þessi hrútur er blendingskind af Leirhafnarfé í föðurætt en kollóttu fé í móðurætt. Múlasýslur Umfangið metið sem íjöldi dæmdra hópa var mjög líkt og áð- ur en vinnan unnin á heldur færri stöðum. Stór rannsókn var á sex stöðum og þar voru samtals 38 af- kvæmahópar, en minni rannsóknir á sex búum með samtals 61 af- kvæmahóp. Á Hauksstöðum hjá Baldri féll toppurinn i hlut Ljóma 01-403 með 120 í heildareinkunn. Styrkur af- kvæma hans var öðru fremur í ákaflega hagstæðu fitumati hjá slát- urlömbum undan honum, eins og ættemi hans gat gefið fyrirheit um, en hann er sonur Sjóðs 97-846. Á Refsstað stóð efstur Þór 97- 050 með 125 í heildareinkunn en sláturlömb undan honum höfðu bæði betri gerð og minni fítu en undan öðmm hrútum í rannsókn- inni. I minni rannsókn í Hofteigi komu fram undraverðir yfírburðir í kjötmati lamba undan Læk 01- 276 en hann fékk 164 í einkunn fyrir hópinn. Hrútur þessi er sonur Læks 97-843. Á Lynghóli bar mjög af Rúdólf 01-171 með 133 í heildareinkunn en yfirburði sótti hann fyrst og fremst í ótrúlega hagstætt fítumat hjá sláturlömbum undan honum. Þessi hrútur er sonur Túla 98-858. I Lundi stóð langefstur Spegill 01-104 með 137 í heildareinkunn, jafn á báðum þáttum í rannsókn. Þama er fádæma vænleiki lamba, gerð þeirra var góð og afkvæmi þessa hrúts safha lítilli fítu við þennan feikilega mikla fallþunga. Spegill er sonur Dals 97-838. Austur-Skaftafellssýsla Talsvert meira umfang var í rannsóknum á svæðinu en áður þó að mikið vanti enn á að þessi þáttur sé orðinn að umfangi það sem bæri jafn gamalgrónu rækt- unarumhverfí og er í sýslunni. Eingöngu voru unnar stærri rannsóknir og voru þær á sam- tals 10 búum og þar voru 75 hópar. Stór rannsókn vegna sæðinga- stöðvanna var á búunum þrem í Svínafelli. Þangað hafði verið safnað til notkunar á öllum búun- um þremur úrvalshrútum þaðan úr sveitinni undan Garpi 92-808. Á sinum tíma vom Öræfíngar órag- ari en margir aðrir að nota Garp meðan hann var á stöð og þar hafa komið fram margir ótrúlega öfl- ugir synir hans og þótti tímabært að stefna saman þeim sem taldir voru fremstir í flokki á þennan hátt. Á móti þeim voru í rannsókn heimahrútar á hverju búi, mis- munandi fjöldi á hverju búi. Sam- tals voru það 14 heimahrútar sem þama komu til samanburðar. Við skoðun lifandi lamba var strax ljóst að tveir aðalhrútanna skiluðu greinilega þeim gæðum í lömbum sem við hafði verið búist. Lækur 98-454 á Svínafelli hafði fyrir hæsta BLUP- mat hrúta í landinu fyrir gerð í kjötmati og lömbin undan honum sannfærðu strax um að þar færi hrútur sem ætti vem- legt erindi á stöð. Þangað fór hann, varð að leggja niður nafn sitt vegna hálfbróður hans sem þar var fyrir með sama nafni og heitir nú Víðir 97-887. Gnýr 98-367 á Litla-Hofi var einnig að skila feikilega glæsilegum lömbum þó að þau væru heldur léttari en af- kvæmi Víðis. Gerð hjá mörgum lambanna undan Gný var ffábær. Þessi hrútur drapst því miður um haustið þannig að hann komst aldrei til nota á stöð. Þriðji Garps- sonurinn, Fengur 98-102 á Hnappavöllum, skilaði einnig mörgum mjög góðum lömbum en sterkar vísbendingar voru um að hann gæfí öllu meiri fitu hjá af- kvæmum sínum en bræður hans tveir, þannig að ekki þótti ástæða til að hann færi til stöðvardvalar. Margir heimahrútanna voru að skila góðum lömbum í rannsókn- 138 - Freyr 3/2003

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.