Freyr

Árgangur

Freyr - 01.04.2003, Síða 43

Freyr - 01.04.2003, Síða 43
Skoðun lifandi lamba haustið 2002 Starf búnaðarsamband- anna að sauðfjárræktinni á haustdögum hefur á síð- ustu árum verið að breytast mjög hratt. Ekki þarf að leita mörg ár aftur í tímann til þess að hrútasýningar þar sem fram fóru einstaklingsdómar á full- orðnum hrútum voru umfangs- mesti þáttur starfsins. Fyrir nokkrum árum var ákveðið að takmarka þetta starf að mestu við veturgamla hrúta. Fagráð í sauðfjárrækt ákvað síðan árið 2002 að ekki yrði lengur farið fram á það við búnaðarsam- böndin að halda uppi sýningar- haldi fyrir fullorðna hrúta. Haustið 2002 var sýningarhald fyrir fullorðna hrúta því fellt niður í mörgum héruðum. Á öðrum stöðum ákváðu viðkom- andi búnaðarsambönd að halda slíku starfi í óbreyttri mynd. í Ijósi þessa að ekki er lengur um samræmt starf að ræða um allt land er ekki lengur neitt yfirlit birt um sýningarhald á full- orðnum hrútum. Slíkt starf mun þá hafa átt sér um átta áratuga samfellda sögu, að vísu með talsverðum breytingum í áranna rás. Samhliða því að dómar á fúll- orðnum hrútum hafa verið að dragast saman og falla út hafa skipulegar skoðanir á lifandi lömbum stóraukist ár frá ári. Eftir að notkun ómsjánna kom til fyrir um áratug hefur gildi slíkra dóma og mælinga stóraukist. Þetta er sá hópur sem eðlilegt er að einbeita sér að í slíkri vinnu vegna þess að það er meðal lambanna sem hið raunverulega úrval á einstaklings- grunni fer fram. Vönduð vinna á því sviði á þess vegna að geta skilað miklum árangri, eins og raunar blasir þegar við mjög víða. Allra síðustu árin, eftir að þetta starf og skipulegar afkvæmarann- sóknir á hrútum hafa verið sam- tengdar, er árangur þess augljós. Gögnum úr haustvinnu hefur verið safnað saman á skipulegan hátt undanfarin ár. Við úrvinnslu eftir Jón Viðar Jónmundsson Bænda- samtökum íslands Freyr 3/2003 - 43 |

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.