Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1928, Blaðsíða 153
NÍUNDA ÁRSÞING
Vildi hann láta finna þá fulltrúa þessa
nýja félags, er búsettir væru hér í bæ, og
benda þeim á aö þeir stigi skör framar
en hófi gegndi og fara þess á leit viö þá,
með allri vinsemd, aö þeir breytti nafn-
inu. Lagöi hann til aö máliö væri tekið á
dagskrá. Séra Jónas A. Sigurösson studdi.
Var þaö samþykt. Séra Jónas A. Sig-
urösson vildi láta íslendinga andmæla;
væri þetta endurtekning margítrekaöra
tilrauna aö he’lga sér verk íslendinga.
Lagöi til að nefnd yrði rkipuð í þinginu
til að hugleiða málið og koma með tillög-
ur fyrir þing. Séra Rögnv. Pétursson
stúddi. Séra J. P. Sólmundsson kvað þetta
mál leiða það i ljós að þegar til alvör-
unnar kæmi gætum vér verið einhuga. Um
þetta væru allir sammála. Séra Runólfur
Marteinsson kvað orðið ‘Norse* hafa feng-
ið nýja merkingu.—Áður hefði það verið
sama sem “Norrænn”—nú þýddi það vist
oftast “Norwegian.” Séra Rögnvaldur
kvað nokkuð hæft i þvi, að þeirri merk-
ingu væri haldið fram af Norðmönnum,
án þess þó að þeir vildu láta undanskilja
það, sem áður hefði verið látið í þvi fel-
ast. Eftir nokkrar umræður var tillagan
samþykt, og í nefndina skipaðir séra
Rögnvaldur Pétursson, séra Jónas A. Sig-
urðsson og séra Runólfur Marteinsson.
Var ,þá borin upp fundarslita tillaga,
skyldi þingi frestað til kl. 10, næsta morg-
uns. Forseti gat þess að samkvæmt venju
væri kveldið helgað hinu árlega Miðsvetr-
armóti Þjóðræknisdeildarinnar “Frón,”
er einnig væri nefnt “Þ jóðræknismót,” og
hét á menn að vera til staðar komnir eigi
síðar e.n kl. 8. Var svo fundi slitið og
þingi frestað til kl. 10 næsta morguns.
Sem til stóð hófst samkoma þessi kl. 8.
Var sá fjöldi saman kominn að setja
varð stóla á gangana svo allir fengi sæti.
Var þess getið síðar um kveldið að sjald-
an eða aldrei hefði mótið verið fjölmenn-
ara. Séra Runólfur Marteinsson, forseti
Fróns, setti samkomuna með ágætri ræðu.
Næst honum lék ungfrú J. Johnson á slag-
hörpu. Flutti þá séra Ragnar E. Kvaran
erindi um þjóðræknismálið, áhrifamikið
og ágætlega samið, ennfremur dr. Sig.
llí)
Júl. Jóhannesson annað, um sama efni,
ikvæði, er skáldið Gutt. J. Guttormsson
orti fyrir mótið, las Gísli P. Magnússon.
Þá las 'skáldið Lúðvík Kristjánsson upp
gamankvæði er hann hafði þá ort fyrir
skemstu. Var því svo vel tekið að ekki
fékk hann að ganga af ræðupalli fyr en
hann fór með annað, er engu þótti ó-
snjallara. Þá las séra J. P. Sólmundsson
upp drápu, fornyrða, um “Hrólfs eðlið.”
Milli ræða og kvæða upplesturs skemti
prýðilega æfður karlmannakór með fjölda
islenzkra söngva. í kórnum voru allir hin-
ir valinkunnustu söngmenn, er heima eiga
hér í bæ, en söngnum stjórnaði hr. Bryn-
jólfur Þorláksson. Einsöng söng hr. Árni
Stefánsson, en að lokum söng herra Sig-
fús Halldórs frá Höfnum, hið mikla
skozka söguljóð, “Archibald Douglas,”
eftir Fontane, og afhenti glímuköppunum
verðlaunin, er þeim höfðu hlotnast kveld-
inu áður. Gengu þá sumir til snæðings en
aðrir véku til dans. Hélt svo samkoman
áfram þar til löngu eftir miðnætti. Bar
samkoman það með sér, að Þjóðræknis-
félaginu vex nú megin með ári hverju.
Fimti þingfundur settur kl. 10 f. h. 23.
febr. 1928. Fundarbók lesin og samþykt.
Árni Eggertsson benti á að ýmislegt
væri rangt tilfært í fréttum af þinginu í
ensku blöðunum, sérstaklega “Tribune.”
Vildi hann láta útnefna einhvern til þess
að veita áreiðanlegar fréttir. Lagt til og
samþykt í einu hljóði að maður sé út-
nefndur í þessa stöðu. Forseti útnefndi
Árna Eggertsson.
Herra Ágúst Sædal lagði þá fram eftir-
fylgjandi nefndartillögu í Bókasafnsmál-
inu:
Herra forseti! Háttvirta Þjóðræknis-
þing:
Vér, sem kosnir vorum til að athuga
frumvarp til reglugerðar fyrir bókasafni
Þjóðræknisfélagsins leyfum oss að láta í
ljós álit vort á málinu.
Vér mælum eindregið með fyrnefndu
frumvarp eins og það var orðað í 8 lið-
um.
Vér leggjum til að þingið kjósi 3 manna
milliþinganefnd, sem annist um bókakaup
og láti smíða sæmilegan bókaskáp fyrir