Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1928, Blaðsíða 157
NÍUNDA ÁRSÞING
123
Júl. Jóhannesson studdi. A. B. Olson af-
sakaöi sig frá kosningu. A. P. Jóhanns-
son stakk upp á Páli S. Pálssyni sem
skjalaverði, Mrs. P, S. Pálsson lýsti yfir
fyrir hans hönd aö hann gæfi ekki kost
á sér til þess embættis. Var þá stungið
upp á Hjálmari Gíslasyni er einnig bað
afsökunar. Meö því aö fleiri voru ekki í
kjöri var Ó. S. Thorgeirsson kosinn
skjalavöröur í einu hljóöi.
Lýsti forseti þá yfir að lokiö væri kosn-
ingu stjórnarneíndar, en eftir væri að
kjósa tvo endurskoöendur, er samkvæmt
lögum félagsins ætti að kjósa ainnan til
tveggja en hinn til eins árs.
Séra Jónas A. Sigurösson lagöi til aö
B. B. Olson væri kosinn endurskoöandi
til tveggja ára en Sigfús Halldórs frá
Höfnum studdi. Fleiri voru ekki í kjöri.
Var hann því endurkosinn í einu hljóöi.
Árni Eggertsson stakk upp á Walter
Jóhannsson sem endurskoöunarmanni til
eins árs, J. F. Kristjánsson studdi. A. P.
Jóhannsson kvaö þá útnefndingu ekki
gilda, væri sonur sinn ekki á þingi, en
hefði látið þess getiö aö hann tæki ekki
kosningu. Gísli Magnússon stakk þá upp
á séra J. P. Sólmundssyni en A. B. Olson
studdi. Séra Jónas A. Sigurösson stakk
upp á G. K. Jónatanssyni, Jón J. Húnfjörö
studdi. Að lokum afsökuðu sig þessir allir
og lagði þá Mrs. F. Swanson til, en Sig-
fús Halldórs frá Höfnum studdi, að
fresta skyldi þessari kosningu unz ta1
yrði haft af fyrverandi endurskoðanda
Walter Jóhannsson oe eftir'bví komist
hvort hann myndi fáanlegur til að gegna
verkinu áfram. Var tillagan samþykt.
Var þá aftur tekið fvrir Bðkasafns-
málið. Tillaga A. P. Jóhannssonar borin
upp og feld. Fvrsta grein frumvarpsins
samþykt, sömuleiðis 2. og 3. Fjórða grein
feld: 5. gr. samþykt. Var viðbætt orðun-
um “sætti lántakandi sig ekki við úrskurð
skialavarðar getur hann skotið máli sínu
til stjórnarnefndar, er þá sker úr.” 6. gr.
samþykt. B. B. Olson gerði hrevtingartil-
lögu við 7. gr. að bókaveröi séu greiddir
$25.00 á ári. Brevtingarti"aga.n feld, 7. gr.
samþvkt með 30 atkv. gegn 19.
Tillaga bókasafnsnefndarinnar um að
skipa milliþinganefnd til þess að annast
um bókakaup rædd. B. B. Olson lagði til,
E. P. Jónsson studdi, að í stað milliþinga-
nefndar sé stjórnarnefndinni falið þetta
verk. Breytingartillagan borin upp og
samþykt. Var þá alt nefndarfrumvarpið
borið upp með áorðnum breytingum og
samþykt.
A. P. Jóhannson las þá upp eftirfylgj-
andi tillögu fjármálanefndar um styrk-
veitingu til útbreiðslu félagsins.
“Fjármálanefndin lítur svo á, að heim-
fararnefndin muni að meira eða minna
leyti starfa að útbreiðslumálum á árinu
og hvetja íslendinga til að styðja og
styrkja Þjóðræknisfélagið hvervetna þar
sem nefndin fer um bygðir íslendinga.
Leggur því nefndin til að veiting til út-
breiðslumála sérstaklega skuli eigi fara
fram úr $100.00 og þó með því skilyrði,
að fé þessu sé varið til að stofna deildir.
þar sem þjóðræknishreyfingin er komin á
það stig, að bygðirnar óska eftir, að sér
sé sendur fulltrúi frá Þjóðræknisfélaginu
til þess að koma deildum á fót.
23. febr. 1928
A. P. Jóhannsson, Tobías Tobíasson,
Jón J. Húnfjörð.”
Breytingartillaga við nefndarálitið um
að hækka fjárstyrkinn upp í $200.00 og
að stjórnarnefndinni séu leyfðar óbundn-
ar hendur með hvernig hún noti fjárveit-
inguna, var studd og samþykt.
B jörgvinsmáliff var þá næst á dagskrá
E. P. Jónsson rakti sögu málsins. Kvað
fjársöfnun hafa gengið ágætlega. Líkur
væru til að Björgvin Guðmundsson lyki
námi á þessu vori. Lagði til að milli-
þinganefnd væri enn skipuð í málið. Til-
löguna studdi B. B. Olson.
Séra Rögnvaldur Pétursson gerði þá
breytingu, er studd var af J. S. Gillies að
sama nefnd sé endurkosin er málinu hefir
veitt forstöðu til þessa. Breytingartiilagan
samþykt í einu hljóði.
Iþróttamáliff:—Hjálmar Gislason lagði
fram svohljóðandi nefndarálit:
“Herra forseti! Vér, sem skipaðir voru
i nefnd til aö athuga iþróttamál og skýrslu