Heimilisritið - 01.12.1947, Qupperneq 60
SKOtlAiMil PiÁtUÍA VUitO Oivii'iAii
Kæra Eva mín. Ég er svo óhamingju-
söm, og þess vegna leita ég þinna ráða
eins og ráðhollrar vinkonu. I marga mán-
uði hef ég átt góðan kunningja, en nú
erum við liætt að umgangast hvort aim-
að, af því að við áttum svo fá sameigiu-
leg áhugamál og voru yfirleitt sjaldan á
sama máli. Nú er ég á báðum áttum með,
hvort ég á að segja honum, hvað mér fell-
ur aðskilnaður okkar þungt og biðja hann
um að endurnýja kunningsskap okkar,
þrátt fyrir allt ósamkomulag.
Gróa.
Sv.: I>að held ég væri óheillaráð. A
hvaða grundvelli ætlar þú að bera fram
þá ósk þína, öðrum en þeim, að þér líði
ekki sem skyldi eftir að þú liættir umgengni
við hann? Sú vanlíðan stafar sennilega
af því, að þú ert orðin vön að umgangast
hann og hefur ekki aflað þér nýrra vina í
hans stað — ennþá. Skoðanir ykkar eru
enn skiptar. Ef þú ert skynsöm og lætur
einmanakennd þína ekki yfirbuga þig enn
um stmid muntu sjá fram á, hvað ósam-
komulag ykkar táknar. Flestar stúlkur
kynnast mörgum piltum, áður en þær
finna þann eina rétta, og slík viðkynning
verður þeim til góðs síðar í lífinu.
WOODY IIERMAN
Sp.: Ég er ein af þeim, sem er mjög
þakklát fyrir ensku sönglagatextana, sem
birtast í Heimilisritinu, og ég veit að þeir
njuui miKina vmsælua. IVlér launst það ein-
kenuileg þröngsýni og skihiingssljóleiki á
áhugamál íslenzkrar æsku, þegar ég heyrði
sæmilega viti boriun mann lialda því fram
ekki alls fyrir löngu, að réttast væri að
banua að birta þá hér á landi. Iívers
vegua er söngvurum þá leyft að syngja
erlend lög með erlendum textum í sjálfu
Ríkisútvarpinu? — En það var eldd þetta,
sem ég viidi þér fyrst og fremst. Mig lang-
ar til að biðja þig um að segja mér eitt-
hvað um jazz-stjörnuna VVoody Herman,
sem nú gerir mesta lukku í lieiminum og
mun vera búin að slá Duke Ellington út.
Vildirðu vera svo góð?
Sigga.
Sv.: I bókinni „Jazz-stjörnur", sem ný-
lega er komin út og getur um marga kunn-
uslu hljómleikamenn heimsins, segir m. a.
um jiann er jiú spyrð um: — Iiann er
fæddur í Mihvaukee 16. maí 1913. Þar
geldc liann í skóla og lör síðan í Marguette-
háskólann. Snemma tók hann að leggja
stund á tónlist og stjórnaði fyrstu hljóm-
sveit sinni aðeins 10 ára gamall. Skömmu
síðar kom hann opinberlega fram sem sóló-
klarinettleikari og fór nokkru seinna að
spila með hljómsveitum. Arið 1935 varð
hann hljómsveitarstjóri og hefur aukið vin-
sældir sínar jafnt og þétt. Ilerman sjálfur
spilar á klarinett og altsaxophone og auk
þess syngur hann ágætlega. Jazz-hljómsveit
hans er nú talin einshver sú bezta í heim-
inum.
Eva Adams.
58 HEIMILISRITIÐ
í