Heimilisritið - 01.09.1948, Page 5
„Æ, hvers vegna ertu ævin-
lega svona, þegar við ætlum að
fara annað en í einhverja leið-
indakrána þína eða bíó?“ sagði
Margot. Það var öldungis hroða-
legt að vera tuttugu og fimm
ára, í nýjum kjól og gift manni,
sem ekki leit á hana með meiri
áhuga en þó hún hefði verið
trjádrumbur. Og fyrir þremur
árum hafði hann skrifað' henni
ástarbréf á hverjum einasta
degi, þangað til á brúðkaups-
daginn. Hjónaband, hugsaði
hún, er endir alls.
„Eg skal hnýta það“, sagði
hún, og skammaðist sín fyrir
þessar ofsafengnu hugsanir, þeg-
ar afski’æmt andlit hans í spegl-
inum vakti samúð hennar.
Johnny, elskan, var alveg eins
og barn. Hún ætlaði að fyrirgefa
honum.
Hann sneri sér við, Ijómandi
af ánægju. „Reyndu þá“, sagði
hann.
„Þú elskar mig ennþá, er það
ekki?“ sagði hún og hlýnaði um
hjartaræturnar af brosi hans og
byrjaði að hnýta slaufuna.
Hann muldraði eitthvað til
samþykkis, og hún hélt ánægð
áfram.
„Hver fjandinn“, sagði hann,
„þú hnýtir það öfugt“.
„Ég held nú ekki“.
„Þú gerir það víst“. Hann
hristi höfuðið.
„Jæja, gerðu það þá sjálfur“,
sagði hún, ýtti í brjóst hans og
fannst kvöldið' enn á ný eyði-
lagt vegna geðillsku hans.
„Hvers vegna í ósköpunum
giftist ég þér?“ sagði hún.
„Leitaðu á mér“, svaraði
hann og tók af allan efa um það,
að svarið væri ekki að finna á
honum.
„Þú vilt ekki gera neitt, sem
ég vil, nú orðið“, sagði hún, særð
og ringluð af svari hans, er hún
skildi sem játningu þess, að
hann óskað'i að þau hefðu aldrei
gifzt.
„Jæja, við förum þá, eða
hvað?“ sagði hann ofurlítið iðr-
andi.
„Og það verður skemmtilegt,
eða hitt þó lieldur“, sagði hún
beisklega, „með þér álíka glað-
legum og dautt skorkvikindi“.
„Þakka“, sagði hann kulda-
lega og ekki lengur iðrandi.
„Þetta er í fyrsta sinn, sem þú
kallar mig skorkvikindi“.
Hún leit á mynd hans í spegl-
inum og flissað'i. „Skorkvikindi“,
sagði hún, „ég lief gifzt skor-
kvikindi“.
Hann fór líka að hlæja, og
hún fór til hans og tók hand-
leggjunum utan um mittið á
honum og þráði allt í einu sátt
og samlyndi. Hann vatt sér við
og greip utan um hana.
„Gættu að kjólnum mínum og
HEIMILISRITIÐ
3