Heimilisritið - 01.09.1948, Page 11

Heimilisritið - 01.09.1948, Page 11
brýðisalda fór um hana. Hvar var hann? Ef hún mætti hon- um'nú með þá rauðhærðu? Hún gekk hægt og hafði vakandi auga á umhverfinu, er þau nálg- uð'ust endann á grasflötinni. Hún vissi, að hann myndi fara með hana sem lengst, eins og hún vissi, að það var óhyggilegt af henni að fara þangað. En það var honum mátulegt. En í hinum enda garðsins var enginn. Þau horfðu á ána. Ferdi lagði handlegginn um mitti hennar og hún hörfaði ofurlítið. Eg læt hann ekki komast of langt, liugsaði hún. Gallinn var sá, að' hann virt- ist ekki taka eftir undanfærslu hennar, en setti handlegginn á sama stað og áður og hóf að syngja þýðan, skrítinn söng. — „Þetta“, sagði hann, „er afar forn, persneskur ástarsöngur“. „Hvað þýðir það?“ sagði hún áköf, ekki af því hana langaði til að vita það, héldur vegna va'xandi, óskiljanlegs ótta. Hvar var Johnny? Hún þráði að sjá hann koma. „Það' þýðir“, sagði hann: Augu þín eru tvœr dilfur, sál mín livílir í þeim. Munnur þinn sœtur ávöxtur, vanr mínar snerta hann. Hún gat ekki stillt sig um að skríkja, sumpart af taugaóstyrk, sumpart af því að hugsa sér dúfur í augunum. Hvernig, Johnny myndi hlæja, ef hann heyrði þetta! „Því hlægið þér?“ sagði hann svo grimmdarlega, að hún varð hissa. „Ég ætlaði ekki að gera það“, sagði hún, „en dúfur í augum!“ Hún fór aftur að hlæja og leit ósjálfrátt til baka eftir grasflöt- inni, þar sem klúbbgluggarnir ljómuðu. I þeirri andrá þrýsti hann henni fastar að' sér. „Ó“, sagði hún, „nei!“ Hún streittist á móti. Hún hataði hann. O, Johnny, hugsaði hún. „Ég verð að kyssa yður“, sagði hann og laut dökku and- litinu niður að henni ákafur. Henni ofbauð svo, að hún barð- ist um og tókst að losa sig og flýð'i heim grasflötina. Þegar hún beygð'i heim að aðaldyrunum, heyrði hún rödd Johnnys: „Hvar hefurðu verið?“ „Hvergi“, sagði hún andstutt og reyndi að sýnast kærulaus. „Þú hefur setið úti hjá þess- um bölvuðum labbakút“, sagði hann. „Nú, hvar hefur þú verið?“ sagði hún til að forðast árás. „Ég leitaði og leitaði að' þér“. „En þú beiðst ekki“, sagði hann ásakandi. „Því skyldi ég hafa beðið eftir þér og þessari feitu, rauðhærðu drós?“ spurði hún með áherzlu. HEIMILISRITIÐ 9

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.