Heimilisritið - 01.09.1948, Síða 23

Heimilisritið - 01.09.1948, Síða 23
um, að hann varð fórnarlamb glettinna, brezkra skólastráka. Dag nokkurn, við' hádegis- verðinn í Frogmore, sneri Hua máli sínu frá háfleygum skýr- ingum á breytanleik óákveðna greinisins í franskri tungu, að ágæti franskrar matargerðar- listar og dvaldi einkum við það, hve mikið lostæti froskafætur væru. Þar sem við börnin höfðum aldrei bragðað þá, datt okkur fyrst í hug, að hann ætlaði að fara að' segja okkur grínsögu. En er hann hélt áfram máli sínu varð okkur Ijós einlægni hans, að það væri ekki nóg með, að þessi leiðinlegi maður æti froskafætur, heldur virtist hann taka þá fram yfir annan mat. Ég held að það hafi verið Mary, sem fyrst kom til hugar að gera sér mat úr þessu, en mamma tók þátt í því líka. Við fengum okkur þéttriðið net og fötu, og lögðum af stað' á froskaveiðar. En þar sem þetta var um útungunartímann tókst okkur ekki að ná í nema unga. Við fórum sigri hrósandi með þá inn í eldhús og létum matsvein- inn steikja þá og bera á borð fyrir frönskukennarann um kvöldið. Hua vissi auðvitað ekkert um samsærið, og er þjónninn bar réttinn fyrir frönskukennarann, sá ég út undan mér að allir, sem voru með í samsærinu, horfðu á með hreinum englasvip af ánægju. Vitanlega hafði það aldrei verið ætlun okkar að láta pró- fessorinn borða froskaungana, en áður en mamma gat komið upp orði hafði hann ráðist á þá með hníf og gaffli og stungið bita upp í sig, með tilhlökkunar- svip. Mamma kallaði: „nei, nei!“ og stamaði, að þetta væri allt saklaust gaman, og að' það hefði ekki verið ætlast til að þessi réttur yrði borðaður. Mér fannst Hua sýna hreysti með því að renna niður bitan- um, sem hann hafði stungið upp í sig, en það voru hatursfull augu, sem hann renndi yfir borðið. Hann reis á fætur, hneigði sig fyrir móður minni, og var í laginu eins og hagla- byssa þegar hún er opnuð, en rauk síðan á dyr. Mamma deplaði augunum. „Ég er hrædd um börn“, sagði hún blíðlega, „að franskir mat- menn geri greinarmun á froska- fótum og froskaungum“. I nœsta hefti lýsir hertog- inn m. a. liinum þróttmikla afa sínum, Edward VII. HEIMILISRITIÐ 21

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.