Heimilisritið - 01.09.1948, Blaðsíða 27
af hættulegt, því að hægt var að
drekka það í hófi, ef maður hafði
viljann; samt ætlaði hún aldrei
að eiga undir duttlungum þess.
Hún komst að því að fólkið,
sem rallaði hvað mest, var alls
ekki vont fólk, heldur fólk, sem
ekki þekkti sjálft sig nægilega
vel til þess að geta stjórnað
sjálfu sér eða áætlað mátt sinn
gagnvart freistingunum.
SVO HÆTTI síldin að veið-
ast og Sigrún fór heim til sín
einsog aðrir. Og næsta vetur var
hún í Klettavík. Fámennt þorps-
lífið var leiðinlegt og hún undi
sér illa þar. Hún gat ekki þolað
að kerlingarnar gerðu allt, sem
hún aðhafðist eða sagði, að um-
talsefni í væmnum kjaftasögum.
— En vetur leið og vorið kom
með dökkurn, auðum fjalls-
hlíðum og vatnsmiklum ám,
sem flæddu vfir bakka sína í
lcrafti leysinganna. Kalið grasið
gægðist undan snjónum og dag-
inn lengdi ört.
Sigrún ákvað að fara til Siglu-
fjarðar um sumarið og vinna þar
við síldarsöltun, eins og hún
hafði gert sumarið áður.
Hún kom til Siglufjarðar á-
kveðin í því, að skemmta sér
meira en hún hafði áður gert. Nú
var hún orðin sautján ára og
þroslcuð eftir aldri þótt hún væri
smávaxin. Hún sótti böll og
hvers kyns skemmtanir meira en
fyrr, og í stað þess að hún hafði
áður aðeins kysst þá er fylgdu
henni heim, einn koss fyrir utan
dyrnar, kyssti hún þá nú marga
kossa fyrir innan þær. Annars
batt hún ekki trúss við neinn sér-
stakan.
Og þannig leið fram á síldar-
vertíðina, þangað til hún kynnt-
ist Albert.
ÞAÐ VAR á dansleik í einu
veitingahúsinu, hann dansaði
mikið við hana og fylgdi henni
heim um kvöldið. Hann var lag-
legur og ungur, síkátur og
skemmtilegur. Hún vissi að hann
drakk töluvert, en lét sér það á
sama standa, því hún var orð-
in hrifin af honum. Hún þóttist
þess fullvís, að hann væri einnig
hrifinn af sér og eftir þetta
kvöld fóru þau saman á
skemmtanir hvert sinn er hann
var í landi. Hann átti hehna á
Austfjörðum og hafði verið á
síld þrjú sumur áður.
Smárn saman gerði Sigrún sér
•þó ljóst, að hann var ekki eins
reglusamur og hún hefði æskt, en
hún var ástfangin og hafði það
að engu.
Eitt sinn frétti Sigrún, að
hann hefði sofið hjá einhverri
stúlku. Þennan sama dag ákvað
hún að vera eftirlát við hann í
fyrsta skipti, og um nóttina svaf
HEIMILISRITIÐ
25