Heimilisritið - 01.09.1948, Síða 27

Heimilisritið - 01.09.1948, Síða 27
af hættulegt, því að hægt var að drekka það í hófi, ef maður hafði viljann; samt ætlaði hún aldrei að eiga undir duttlungum þess. Hún komst að því að fólkið, sem rallaði hvað mest, var alls ekki vont fólk, heldur fólk, sem ekki þekkti sjálft sig nægilega vel til þess að geta stjórnað sjálfu sér eða áætlað mátt sinn gagnvart freistingunum. SVO HÆTTI síldin að veið- ast og Sigrún fór heim til sín einsog aðrir. Og næsta vetur var hún í Klettavík. Fámennt þorps- lífið var leiðinlegt og hún undi sér illa þar. Hún gat ekki þolað að kerlingarnar gerðu allt, sem hún aðhafðist eða sagði, að um- talsefni í væmnum kjaftasögum. — En vetur leið og vorið kom með dökkurn, auðum fjalls- hlíðum og vatnsmiklum ám, sem flæddu vfir bakka sína í lcrafti leysinganna. Kalið grasið gægðist undan snjónum og dag- inn lengdi ört. Sigrún ákvað að fara til Siglu- fjarðar um sumarið og vinna þar við síldarsöltun, eins og hún hafði gert sumarið áður. Hún kom til Siglufjarðar á- kveðin í því, að skemmta sér meira en hún hafði áður gert. Nú var hún orðin sautján ára og þroslcuð eftir aldri þótt hún væri smávaxin. Hún sótti böll og hvers kyns skemmtanir meira en fyrr, og í stað þess að hún hafði áður aðeins kysst þá er fylgdu henni heim, einn koss fyrir utan dyrnar, kyssti hún þá nú marga kossa fyrir innan þær. Annars batt hún ekki trúss við neinn sér- stakan. Og þannig leið fram á síldar- vertíðina, þangað til hún kynnt- ist Albert. ÞAÐ VAR á dansleik í einu veitingahúsinu, hann dansaði mikið við hana og fylgdi henni heim um kvöldið. Hann var lag- legur og ungur, síkátur og skemmtilegur. Hún vissi að hann drakk töluvert, en lét sér það á sama standa, því hún var orð- in hrifin af honum. Hún þóttist þess fullvís, að hann væri einnig hrifinn af sér og eftir þetta kvöld fóru þau saman á skemmtanir hvert sinn er hann var í landi. Hann átti hehna á Austfjörðum og hafði verið á síld þrjú sumur áður. Smárn saman gerði Sigrún sér •þó ljóst, að hann var ekki eins reglusamur og hún hefði æskt, en hún var ástfangin og hafði það að engu. Eitt sinn frétti Sigrún, að hann hefði sofið hjá einhverri stúlku. Þennan sama dag ákvað hún að vera eftirlát við hann í fyrsta skipti, og um nóttina svaf HEIMILISRITIÐ 25

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.