Heimilisritið - 01.09.1948, Síða 29

Heimilisritið - 01.09.1948, Síða 29
Nokkrum dögum. fyrir jólin tók hún ákvörðun sína. Henni fannst að hún gæti ekki farið úr vistinni án þess að útvega stúlku í sinn stað; og hún varð að fara áður en sæist meira á henni. Hún sendi því vinstúlku sinni fyrir vestan símskeyti, þar sem hún spurði, hvort hún gæti komið suður til Reykjavíkur og farið í sinn stað í vistina, vegna þess að hún væri veik. Svarið kom tveim dögum síðar og hljóðaði á þá leið, að stúlkan gæti komið og myndi leggja af stað með næstu ferð strandferðaskipsins. Sigrún nefndi þetta ekki við neinn, en hún beið þó eftir tæki- færi til þess að segja frúnni, sem hún var hjá, að hún yrði að fara. Þetta tækifæri kom daginn fyrir gamlárskvöld. Þær voru að drekka morgun- kaffið, þegar frúin sagði: Hevrðu Rúna mín, þú þarft að fá þér einn eða tvo nýja kjóla. Þú ert sama og alveg kjólalaus. Sigrún blóðroðnaði, leit niður þyrir sig og svaraði: Eg hafði nú hugsað mér að láta ekld sauma á mig kjól á næstunni. Eg er nefni- lega með barni. Hún varp öndinni; nú var það sagt. Með barni, veinaði frúin. Já, ég er ólétt, svaraði Sigrún rólega og leit á hana. Jæja, með barni, jahérna. Hvenær gerðist þetta eiginlega? spurði frúin undrandi. I sumar á síldinni, svaraði Sigrún. Það varð vandræðaleg þögn um stund. Síðan spurði frúin í mildum tón: Hvenær áttu von á barninu, góða mín? Seinast í maí, svaraði Sigrún. En þú getur ekki ... Ég er búin að útvega þér stúlku í rninn stað, greip Sigrún fram í fyrir henni. Hún kem- ur að vestan með fyrstu ferð. Jæja, góða. En faðirinn, hvað með hann? Ekkert, svaraði Sigrún. Hann er ekki nema nítján ára og ekki til að treysta á. Ég hugsa að hann geti ekki einu sinni borgað meðlagið. Hann drekkur dálítið. Nú? sagði frúin. Já, hélt Sigrún áfram. Ég ætla að eiga barnið heima. Það er eklci útilokað að ég giftist einhvern- tírna, þótt ég eigi barnið í lausa- leik. Tárin brutust fram í augna- króka Sigrúnar og runnu niður kinnar hennar. Svona svona, væna mín, þetta lagast allt saman, sagði frúin ástúðlega. Þær stóðu upp frá borðinu og Sigrún vann verlc sín eins og áð- ur. Um miðjan janúar kom skipið að vestan og stúlkan með því. TCvöldið eftir fór Sigrún með HEIMILISRITIÐ 27

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.