Heimilisritið - 01.09.1948, Qupperneq 29
Nokkrum dögum. fyrir jólin
tók hún ákvörðun sína. Henni
fannst að hún gæti ekki farið úr
vistinni án þess að útvega stúlku
í sinn stað; og hún varð að fara
áður en sæist meira á henni. Hún
sendi því vinstúlku sinni fyrir
vestan símskeyti, þar sem hún
spurði, hvort hún gæti komið
suður til Reykjavíkur og farið í
sinn stað í vistina, vegna þess að
hún væri veik. Svarið kom
tveim dögum síðar og hljóðaði
á þá leið, að stúlkan gæti komið
og myndi leggja af stað með
næstu ferð strandferðaskipsins.
Sigrún nefndi þetta ekki við
neinn, en hún beið þó eftir tæki-
færi til þess að segja frúnni, sem
hún var hjá, að hún yrði að fara.
Þetta tækifæri kom daginn fyrir
gamlárskvöld.
Þær voru að drekka morgun-
kaffið, þegar frúin sagði: Hevrðu
Rúna mín, þú þarft að fá þér
einn eða tvo nýja kjóla. Þú ert
sama og alveg kjólalaus.
Sigrún blóðroðnaði, leit niður
þyrir sig og svaraði: Eg hafði nú
hugsað mér að láta ekld sauma á
mig kjól á næstunni. Eg er nefni-
lega með barni.
Hún varp öndinni; nú var það
sagt.
Með barni, veinaði frúin.
Já, ég er ólétt, svaraði Sigrún
rólega og leit á hana.
Jæja, með barni, jahérna.
Hvenær gerðist þetta eiginlega?
spurði frúin undrandi.
I sumar á síldinni, svaraði
Sigrún. Það varð vandræðaleg
þögn um stund. Síðan spurði
frúin í mildum tón:
Hvenær áttu von á barninu,
góða mín?
Seinast í maí, svaraði Sigrún.
En þú getur ekki ...
Ég er búin að útvega þér
stúlku í rninn stað, greip Sigrún
fram í fyrir henni. Hún kem-
ur að vestan með fyrstu ferð.
Jæja, góða. En faðirinn, hvað
með hann?
Ekkert, svaraði Sigrún. Hann
er ekki nema nítján ára og ekki
til að treysta á. Ég hugsa að
hann geti ekki einu sinni borgað
meðlagið. Hann drekkur dálítið.
Nú? sagði frúin.
Já, hélt Sigrún áfram. Ég ætla
að eiga barnið heima. Það er eklci
útilokað að ég giftist einhvern-
tírna, þótt ég eigi barnið í lausa-
leik. Tárin brutust fram í augna-
króka Sigrúnar og runnu niður
kinnar hennar.
Svona svona, væna mín, þetta
lagast allt saman, sagði frúin
ástúðlega.
Þær stóðu upp frá borðinu og
Sigrún vann verlc sín eins og áð-
ur.
Um miðjan janúar kom skipið
að vestan og stúlkan með því.
TCvöldið eftir fór Sigrún með
HEIMILISRITIÐ
27