Heimilisritið - 01.09.1948, Blaðsíða 40
NÝJAR deyfingaraðferðir lofa
góðu um, að hægt verði að koma
í veg fyrir næstum allan sárs-
auka, samfara barnsfæðingum.
Oft nægir ein innsprauting af
nýuppfundnu lyfi til að deyfa
sársaukatilfinningTina. I þeim til-
fellum eru kvalirnar minni en í
stólnum hjá tannlækninum.
Sumar lconur, sem njóta þessa
lyfs, sofna blátt áfram eðlilegum
svefni með'an á fæðingu stend-
ur. Aðrir hafa beðið um púður
og varalit til þess að hressa upp
á útlitið.
Þegar ein innsprauting nægir
ekki, fæst venjulega fullkominn
árangur eftir þá næstu.
Þessari nýju aðferð má ekki
blanda saman við rófudeyfingu,
sem vakti slíka athygli fyrir
nokkrum árum. Nýja aðferðin er
sársaukalaus
barnsfæðing
öruggari, einfaldari og krefst
ekki neinnar sérstakrar þekking-
ar fram yfir það, sem venjulegir
læknar ráða yfir. Sé hún notuð
með gætni, eru færri hættur
henni samfara fyrir móðúr og
barn en deyfingum þeim, sem nú
eru yfirleitt notaðar við barns-
fæðingar.
Áður en við förum út í ein-
stök atriði þessarar nýju aðferð-
ar, skulum við rekja stuttlega
hvað vísindamönnum hefur orð-
ið ágengt í því að fyrirbyggja
38
HEIMILISRITIÐ