Heimilisritið - 01.09.1948, Side 42

Heimilisritið - 01.09.1948, Side 42
hann að vera á verði 20 til 30 klukkustundir. Allt þetta samanlagt gerir það að verkum, að þessi aðgerð er ekki framkvæmanleg nema af færustu handlæknum í stóruin spítölum. Hún gæti aldrei kom- ið til greina nema við lítið brot allra barnsfæðinga. Oruggari, ó- dýrari og einfaldari aðferðar er þörf. Nú virðist svo sem lækninum John Adriani í New Orleans hafi tekizt að finna slíka aðferð. Adriani ályktaði sem svo, að erfitt væri að finna rófugöngin. En hvaða spítalalæknir sem væri, gæti fundið mænugöngin. Læknar geta tekið sýnishorn af mænuvökvanum til þess að sjúk- dómsgreina heilahimnubólgu, syfilis og lömunarveiki. Frá mænuendanum greinast taugar, sem mynda cauda equina — mænutagl. Þessar taugar stjórna sársaukatilfinningunni, sem er samfara fæðingu. Ef við' gætum nú, sagði Adriani, komið einhverju lyfi, sem deyfði sárs- aukatilfinningu, inn í þennan hluta mænunnar. ... Það var ekkert sérlega nýtt við þessa hugmynd. I næstum tvær kynslóðir höfðu læknar notað mænudeyfingu við skurð- aðgérðir í lcviðarholi. En það sem Adriani vildi gera, var að útiloka sársauka aðeins frá litlum hluta líkamans. Hann þurfti deyfilyf, sem héldist á þessu svæði. Þetta þýddi það, að deyfilyfið varð að vera þyngra en mænu- vökvinn, svo það sykki til botns í göngunum eins og blý í hita- mæli. Ein hindrunin var sú, að flest lyf, sem notuð voru við mænu- deyfingu, verkuðu aðeins stutt- an tíma. Novocain, til dæmis, verkaði aðeins í klukkutíma. En það var til annað, sem verkaði í allt að sex tíma. Það var nuper- cain, sem hafði verið uppgötvað af svissneskum lyfjafræðingum fyrir rúmum tuttugu árum. Mörgum skurðlæknum stóð stuggur af þessu sterka lyfi, sem er 10 til 20 sinnum sterkara en novocain. Þeir óttuðust, að það kynni að síast upp í mænuna, lama andardráttinn og valda dauða. Þeir óttuðust einnig, að það gæti valdið áfalli og dauða með því að lækka blóðþrýsting- inn allt of milcið. Þetta hafði komið fyrir. En Adriani fann ráð. Það var ekki mikil hætta á, að það leit- aði upp eftir mænunni ef það væri þyngra en mænuvökvinn. Og það var hægt að gera það þyngra með því að blanda það þrúgusykri. Hættan á að lækka blóðþrýstinginn virtist hverf- andi, ef aðeins voru notaðir ör- 40 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.