Heimilisritið - 01.09.1948, Page 43
litlir skammtar — og meira
þyrfti ekki til að útiloka sárs-
auka frá því svæði, er tekur til
barnsfæð'ingar.
Brezkir læknar höfðu notað
slíka aðferð til deyfingar við
keisaraskurð. Þeir höfðu notað
miklu stærri skammta en Adriani
ráðgerði, og þeir reynzt fullkom-
lega öruggir. Hann hélt því á-
fram.
Hann nefndi aðferð sína „söð-
ulstíflu“-deyfingu, af því að hún
setti stíflu fyrir sársauka á því
svæð'i, sem snertir söðulinn þeg-
ar farið er á hestbak. Aðferðin
var fyrst notuð við nokkur
hundruð skurðsjúklinga með á-
gætum árangri. Sjúklingar, sem
skornir voru í líffæri á söðul-
svæðinu, losnuðu við allan sárs-
auka — og höfðu ekki eter-timb-
urmenn að að'gerð lokinni.
Nú var Adriani reiðubúinn að
nota þessa nýju aðferð við fæð-
ingar.
Sjúklingarnir fengu nupercain-
sykur, þegar ekki voru orðnar
nema fjórar mínútur milli hríð-
anna. Fyrst var ofurlítill húð-
blettur á bakinu deyfður með
novocain til þes sað fyrirbyggja
sársauka er mænunálinni var
stungið inn.
Vegna þess hve sterkt það er,
þarf aðeins örlitla skammta af
nupercain. Einn rúmsentimetri
nægir. Til samanburðar má geta
HEIMILISRITIÐ
þess, að við rófudeyfingu þarf 30
sinnum stærri innsprautingu.
Sængurkonan situr upprétt í
hálfa mínútu, svo að lyfið fái
tíma til að sökkva til botns í
mænugöngunum. Síðan leggst
hún aftur á bak. Eftir tvær til
fimm mínútur er allur sársauki
horfinn, og eftir 10—15 mínútur
er deyfingin „bundin“ — sem
merkir það, að lyfið geti ekki
framar leitað upp á við í mænu-
göngunum og valdið óþægind-
um.
Lyfið verkar á tilfinningataug-
ar, en ekki hreyfitaugar. Það
stillir því þjáningar án þess að
stöðva vöðvahræringarnar, sem
nauðsynlegar eru við eðlilega
fæðingu.
Læknar, sem sáu þessa aðferð
notaða í fyrsta sinn, áttu erfitt
með að trúa sínum eigin augum.
Sjúklingarnir, sem verið höfðu
taugaóstyrkir og kvíðandi, urðu
glaðlegir og samstarfsfúsir. Alíka
einstæður var árangurinn að því
er börnin snerti. Þau önduðu
strax, án þess að nota þyrfti
skelli, kalt vatn eða súrefni.
Það er ekki hægt að leggja
nógu mikla áherzlu á þýðingu
þess, að' barnið gráti þegar í stað.
Það merkir að það fái súrefni er
það þarfnast þess — fyrstu úr-
slitastund lífsins.
Annað atriði er mikilvægt.
Þegar söðulstífluaðferðin er not-
41